Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 267
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss, fimmtudaginn 14. október 2004, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Björn E. Traustason. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornfjarðar 115. fundur 5. október 2004.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðahafnar 62. fundur 6. okóber 2004.
Halldóra spurði um fjárhag hafnarsjóðs. Bæjarstóri taldi margt benda til þess að fjárhagurinn í lok árs yrði betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2004 – framhaldsumræður
Ásta lagði fram minnisblað um breytingar á fjárhagsáætlun 2004. Halldóra spurði um hvort íbúar í Nesjahverfi hefðu komið fram með hugmyndir hvar fyrirhugaður leikvöllur yrði staðsettur. Helgi Már upplýsti að tveir aðilar hefðu haft samband en ekkert hefði enn verið ákveðið um staðsetninguna.
Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðun á fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar.
3. Fjárhagsáætlun 2005
Ásta kynnti forsendur fjárhagsáætlunar 2005, drög að álagningarreglum fyrir árið 2005 og áætlaðar skatttekjur árið 2005.
Halldóra spurði um skipting kostnaðar við rekstur leikskóla milli sveitarfélagsins og foreldra og hvort hægt væri að lækka hlutdeild sveitarfélagsins í þeim kostnaði með hagræðingu. Stefán taldi að kostir við hagræðingu væru ekki margir. Hins vegar upplýsti hann að fækkað hefði um eina bekkjardeild í grunnskólum sveitarfélagsins.
Halldóra spurði einnig um gjöld til tónskólans og hvort þjónustugjöld hér væru sambærileg við sveitarfélög á svipaðri stærðargræðu. Stefán svaraði að ekki hefði verið gerð nákvæm könnun á slíku.
Stefán upplýsti að þrátt fyrir töluverða fækkun í ýmsum skólastofnun sveitarfélagsins væri kennslumagnið hið sama.
Halldóra spurði um endurskoðun á lóðarleigusamningum. Helgi Már sagði að sú vinna væri skammt á veg komin en yrði unnin á næstunni. Stefnt er að því að nýjar reglur taki gildi um næstu áramót.
Halldóra ræddi um lánakjör á almennum markaði og hugsanlegar lántökur sveitarfélagsins.
4. Reglur Félagsmálaráðs Hornafjarðar
· Verklagsreglur barnaverndarnefndar Hornafjarðar um könnun og meðferð mála sem undir hana heyra og umboð starfsmanns.
· Reglur um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála eða málaflokka hjá starfsmanni félagsmálaráðs Hornafjarðar.
· Reglur um styrk til greiðslu lögmannskostnaðar sbr. 2.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Málinu frestað til næsta fundar.
5. Lögreglusamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð – endurskoðun
Hjalti Þór kynnti fyrstu drög að endurskoðaðri lögreglusamþykkt.
Bæjarráð samþykkir að vísa samþykktinni til viðkomandi nefnda og aðila til umfjöllunar.
6. Stofnfjármunir til menningarstarfsemi
Halldóra spurði um hvort miklar breytingar hefði orðið frá fyrri kynningu á hvernig stofnfjármunum hefur verið varið. Helgi Már upplýsti að ýmislegt hefði verið skorið niður.
Bæjarráð samþykkir hvernig stofnfjármunum til menningarstarfsemi hefur verið varið en áréttar að það liggi ljóst fyrir hverjir séu ábyrgðarmenn fyrir skiptingu fjármunanna.
7. Skuldbreytingar á lánum
Ásta kynnti tilboð sem borist hefur til skuldbreytingar á lánum. Bæjarráð felur Ástu að ganga frá skuldbreytingum á lánum í samræmi við minnisblað, dags. 7. okt., sem lagt var fyrir á fundinum.
8. Leiga á húsnæði sveitarfélagsins
Stefán Ólafsson fór yfir leiguverð á húsnæði sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að leiga á mötuneyti Nesjaskóla verði sú sama og á öðru sambærilegu húsnæði sveitarfélagsins.
9. Kosning fulltrúa á aðalfund Haust 27. október 2004
Bæjarráð tilnefnir Egil Jónasson og til vara Björn E. Traustason.
10. Innsend erindi og til kynningar
· Foss, bréf dagsett 29. september 2004, tilkynning vegna komandi kjarasamninga.
Til kynningar.
· Foss, bréf dags. 4. október 2004, tilkynning um trúnaðarmenn.
Til kynningar.
· Þroskahjálp, bréf dags. 5. október 2004, vegna bygginga fyrir faltaða.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Hoval, tillaga að samstarfi - erindi sent í október 2004.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs og starfsmönnum þess falið að ræða við Hoval.
11. Önnur mál
· Bæjarstjóri kynnti bréf frá Tölvuvaka ehf. þar sem farið er fram á að Sveitarfélagið Hornafjörður tilnefni fulltrúa í verkefnahóp á skipulagningu á ferðaþjónustu tengda norðurljósaskoðun auk þess að leggja til kr. 100.000 til undirbúnings að verkefninu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu.
· Bæjarstjóri kynnti bréf frá Ingu Jónsdóttir, dags. 8. okt. 2004 um Jöklasýningu.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Björn G. Björnsson um hönnun að jöklasýningu.
· Kristín spurði um hvernig vinnu miðaði að skýra eignarhald á íþróttavöllum og félagsheimilum innan sveitarfélagsins.
Starfsmenn upplýstu að vinnan væri farin af stað en skammt á veg komin.
· Kristín spurði um hvernig vinnu miðaði að fá fjárveitingar úr aukafjárlögum til heilbrigðismála.
Starfsmenn upplýstu að ekkert nýtt væri að frétta.
· Kennarar mættu við Ráðhúsið og óskuðu eftir að fá að afhenda formanni bæjarráðs eftirfarandi áskorun: ,,Kennarar við Grunnskóla Hornafjarðar skora á bæjarráð að ræða það af alvöru hvaða leiðum sé hægt að beita til að fá nægilegt fjármagn til að leysa þann hnút sem kjaradeila kennara er í.”
Forseti bæjarstjórnar svaraði kennurum og lagði áherslu á að bæjaryfirvöld hafi sömu áhyggjur og kennarar en jafnframt að bæjaryfirvöld stæðu við bakið á Launanefnd sveitarfélaga og samninganefnd í þessum deilum.
Fundi slitið kl. 12.20


