Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
184. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 10. október 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Halldóra fór yfir fundarsköp bæjarráðs.
1. Fundargerðir
· Æskulýðs- og tómstundaráð 43. fundur 23. september 200
Kristín gerði skátastarf að umtalsefni og lýsti ánægju sinni með það. Lagði hún áherslu á forvarnagildi skátstarfs og fór fram á að bæjaryfivöld sýni þessu starfi skilning. Var undir það tekið.
Fundargerð samþykkt.
2. Forsendur fjárhagsáætlunar
Ásta fór yfir fram lögð gögn. Þar á meðal voru forsendur fjárhagsáætlunar 2003, álagningareglur vegna skatta, dæmi um álagningu fasteignaskatta miðað við mismunandi álagningarhlutfall og endurskoðuð áætlun fyrir skatttekjur 2002.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi forsendur vegna útgjalda við gerð fjárhagsáætlunar 2003:
Laun og launatengd gjöld hækki um 3% í samræmi við samþykkta kjarasamninga.
Rafmagn og hiti hækki um 3%.
Önnur rekstrargjöld hækki ekki milli ára.
Stofnbúnaðarrammar verði óbreyttir milli ára.
Styrkjarammar verði óbreyttir milli ára.
3. Staða framkvæmda við Sindravelli
Halldóra fór yfir forsögu þessa máls og áherslur íþróttafélagsins á eitt samfellt grassvæði. Helgi gerði grein fyrir framkvæmdum á íþróttasvæðinu til þessa. Framkvæmdir miðast við það allt svæðið verði þakið grasi, það hækkað upp og gert þannig úr garði að vatn eigi greiða leið út af því. Á framkvæmdatíma hafa forsendur breyst og það sem þegar hefur verið unnið kostar um 1 - 1,4 millj. króna umfram það sem áætlað var til verksins. Kristín sagðist ekki vera sátt við framkvæmdina við vellina í sumar. Elín var með efasemdir um að Sindra verði falið að sjá um verklegar framkvæmdir á íþróttasvæðum eins og gert var í sumar. Ólafi fannst sem búið væri að stilla bæjarráði dálítið upp við vegg með framkvæmdum sumarsins. Bæjarráð geti ekki lofað meiru til verksins á þessu fjárhagsári. Halldóra sagði að kynna hefði mátt framkvæmdir sumarsins betur, gagnrýni bæjarráðs snúist fyrst og fremst um það.
Samþykkt að vísa þessu máli til fjárhagsáætlunargerðar 2003.
4. Ákvörðun um tónskólagjöld skólaárið 2002-2003
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi gjaldskrá fyrir Tónskólann á yfirstandandi skólaári:
Einkatími fyrir yngri nemendur hækkar úr krónum 14.300 í 15.800.
Einkatími fyrir fullorðna hækkar úr krónum 20.900 í 23.000.
Veittur er 25% afsláttur fyrir annan fjölskyldumeðlim og 50% fyrir þriðja eða fleiri.
Ákvörðun um hljóðfæraleigu er í höndum skólastjóra Tónskólans.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Þjónustuframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, bréf Félagsmálaráðuneytis dags. 3. október 2002.
Til kynningar.
· Fundur náttúruverndarnefnda sveitarfélaganna og Náttúrunverndar ríkisins 18. og 19. október 2002.
Til kynningar.
· Skiptinám fyrir stjórnendur í sveitarfélögum bréf Samb ísl. sveitarf. 3. okt. 2002.18. og 19. október 2002.
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Elín spurði um lénið hornafjordur.is. Lagði hún áherslu á að fá svör frá þeim sem leigt hefur lénið. Sagðist hún ósátt við að tímasetningar sem nefndar voru á kynningu um lénið sl. sumar hafi ekki staðist. Einnig spurði Elín um þjónustusamning vegna tölva í eigu sveitarfélagsins. Inga Jóna sagðist búast við því að nýr samfélagsvefur, hornafjordur.is, fari út á internetið innan eins til tveggja mánaða.
· Inga Jóna gerði grein fyrir fundi með landeigendum, landgræðslustjóra og starfsmönnum í landbúnaðarráðuneyti vegna landgræðslusvæðis, sem kennt hefur verið við Skógey. Bæjarráð samþykkir fyrir hönd sveitarfélagsins, sem einn af landeigendum, að skipuð verði skiptanefnd til að skipta upp Skógeyjarsvæðinu.
· Kristín spurði um Vatnajökulsþjóðgarð. Lokaskýrsla um þetta mál er væntanleg innan skamms.
· Elín ræddi um Hafnarbraut 25 og bar fram spurningu frá félaga í Sindra hvort félagið gæti fengið afnot af húsinu. Samþykkt að skoða þetta mál.
· Rætt um komu sveitarstjórnarmanna frá Sisimiut á Grænlandi.
Fundi slitið kl. 12:05


