Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
185. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 17. október 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 39. fundur 10. október 2002.
Elín ræddi nauðsyn þess að ekki verði einungis gerð úttekt á umgengni á fyrirtækjalóðum heldur verði gerð heildarúttekt. Ólafur sagði að byrja eigi á fyrirtækjalóðum en stefnt sé að frekari úttekt.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 80. fundur 8. október 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnda Hornafjarðar 40. fundur 9. október 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 32. fundur 14. október 2002.
Elín telur að hreinsun bæjarins hafi verið ábótavant í sumar. Rætt var um að fjölga þurfi ruslafötum á miðbæjarsvæði. Bæjarráð beinir því til skólastjórnenda að þeir ræði við nemendur um umgengni á opnum svæðum og hvetji til bættrar umgengni.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2002
Ásta lagði fram breytingablað þar sem gert er ráð fyrir að skatttekjur verði 34,4 milljónum hærri en áætlað var. Af þeirri upphæð fara 14,5 milljónir á launabreytingareikning. Niðurstaða rekstur málaflokka verður í samræmi við fjárhagsáætlun en um millifærslur er að ræða milli deilda. Ekki er tekið tillit til áhrifa byggingar Nýheima en unnið er að endanlegu uppgjöri og rekstraráætlun.
Bæjarráð vísar endurskoðaðri fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar til umfjöllunar og samþykktar.
3. Erindi til fjárlaganefndar Alþingis
Albert kynnti minnisblað yfir helstu erindi sem rædd verða á fundi með fjárlaganefnd sem haldinn verður 29. október n.k.
4. Erindi frá Martölvunni
Kynnt var boð Martölvunnar um samstarf og þróun upplýsingakerfa fyrir Hornafjarðarbæ.
Bæjarráð þiggur kynningu á viðkomandi kerfi án þess að því fylgi nokkur skuldbinding af hálfu sveitarfélagsins.
5. Ósk um niðurfellingu skuldar
Bæjarráð samþykkir að leiðrétta skuldin um kr. 50.000 m.a. á þeirri forsendu að of há prósenta af aðgangseyri var reiknuð í húsaleigu. Leikhópi Mána ber að öðru leiti að standa skil á skuldinni eins og öðrum einstaklingum og félagasamtökum sem leigja húsnæði sveitarfélagsins. Gagnrýni kom fram á að í uppgjöri frá félaginu koma ekki fram allir styrkir m.a. frá Bandalagi íslenskra leikfélaga.
Í þessu sambandi vill bæjarráð benda á að umsóknir um styrki til frjálsra félagasamtaka þurfa að hafa borist fyrir 31. október n.k.
6. Erindi frá Sindra um afnot af Hafnarbraut 25
Bæjarráð samþykkir að veita knd. Sindra afnot af húsnæðinu að Hafnarbraut 25 ( að forstofuherbergi undanskildu) með því skilyrði að það verði tæmt fyrirvaralaust verði nýjar ákvarðanir teknar um notkun hússins eða niðurrif. Félagið greiðir rafmags- og hitareikninga á meðan það nýtir húsið.
7. Skipan og umboð starfshóps til eftirfylgni „Stefnu Hornafjarðar í atvinnumálum“
Erindið verður tekið fyrir á næsta fundi.
8. Málefni löggæslu
· Bréf Sigurðar Guðnasonar lögregluvarðstjóra dags. 9. október 2002.
Bæjarráð óskar eftir fundi með fulltrúum frá sýslumannsembættinu og lögreglu til að ræða ítarlega málefni löggæslu í sveitarfélaginu.
9. Reglur um flutnings- og húsaleigustyrki starfsmanna sveitarfélagsins
Bæjarráð samþykkir fram lagðar reglur um flutnings- og húsaleigustyrk starfsmanna sveitarfélagsins.
10. Erindi frá Ferðamálafélagi Austur-Skaftafellssýslu
· Bréf Sigurlaugar Gissurardóttur formanns félagsins dags. 2. október 2002.
Bæjarráð telur ekki eðlilegt að skipa fulltrúa í stjórn Ferðamálafélagsins frekar en annara frjálsra félagasamtaka í sveitarfélaginu. Bæjarráð heimilar hins vegar að til þess að Ferðamálafélagið geti sótt um VSK númer verði eftirfarandi klausu bætt inn í samþykktir félagsins:
„Komi til ákvörðunar um slit félagsins skal boða til sérstaks fundar og er ákvörðun fundarins aðeins lögmæt ef helmingur félagsmanna mætir og a.m.k. 2/3 hlutar fundarmanna samþykkja tillögu um félagsslit. Við félagsslit skulu eignir félagsins renna til Sveitarfélagsins Hornafjarðar eða til annars félags sem vinnur að sömu markmiðum og Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu“.
11. Innsend erindi og til kynningar
· Árshlutauppgjör Sláturfélagsins Búa dags. 31. ágúst 2002
Til kynningar.
· Úttekt og greinargerð um ástand í umhverfismálum, bréf Náttúruverndar ríkisins dags. 10. október 2002.
Til kynningar.
12. Önnur mál - Engin
Fundi slitið kl. 11:55


