Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 265
265. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal Ráðhúss, fimmtudaginn 30. september 2004, kl. 10:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Björn E. Traustason og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Inga Jóna Halldórsdóttir og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1.Fundargerðir
- Heilbrigðis- og öldrunarráð 53. fundur 2004.
Inga Jóna gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur verið innt af hendi eftir fund fulltrúa sveitarfélagsins með heilbrigðisráðherra s.l. föstudag. Ennfremur fór hún yfir tillögur sem komið hafa fram um breytingar á rekstri dvalarheimilisins, sbr. fundargerð heilbrigðis- og öldrunarráðs. Inga Jóna upplýsti fundarmenn að 30 ára afmæli stofnunarinnar yrði fagnað í lok október en endanleg dagsetning liggur ekki enn fyrir.
Fundargerð samþykkt.
- Æskulýðs- og tómstundaráð 62. fundur 27. september 2004.
Stefán benti á hugmynd í fundargerð um að vista vinnuskólann hjá íþrótta- og tómstundaráði. Hann lagði áherslu á að saman fari fjárhagsleg og fagleg ábyrgð. Einnig benti hann á að ef sveitarfélagið tæki að sér launagreiðslur til þjálfara mætti búast við auknum útgjöldum.
Kristín lýsti yfir ánægju með ÚFFF málþingið og hvatti til þess að bæjarstjórn fylgist með og hvetji til aukins félagsstarfs meðal ungs fólks.
Fundargerð samþykkt.
2. Beiðni um tengingu við vatnsveitu sveitarfélagsins
- Bréf ábúenda Akurness og Seljavalla dags. 17. september 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs.
3.Forhönnunarskýrsla vegna fráveitumála.
Málinu frestað til næsta bæjarráðsfundar.
4. Reglur fyrir leikskóla sveitarfélagsins.
Reglurnar samþykktar.
5. Átta mánaða uppgjör 2004.
Ásta fór yfir uppgjörið sem er í samræmi við fjárhagsáætlun fyrir árið 2004.
Ásta dreifði og kynnti minnisblað vegna endurskoðunar á fjárhagsáætlun fyrir árið 2004.
6. Innsend erindi og til kynningar
- Ragnar Frank Kristjánsson vegna skólavistar Önnu Ragnarsdóttur Pedersen, dags. 27. ágúst 2004.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við beiðninni vegna viðbótarkostnaðar fyrir sveitarfélagið auk þess sem það sjái engin fagleg rök mæla með því að beiðnin verði samþykkt, sbr. bókun skólanefndar 14. september 2004.
- Sameiginleg viljayfirlýsing félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna átaks um eflingu sveitarstjórnarstigsins, dags. 17. september 2004.
Til kynningar.
- Skaftárhreppur, boð á vígslu íþróttahúss, bréf dags. 17. september 2004.
Bæjarráð mun þekkjast boðið.
- Ósk um styrk til verkefnisins ?Stöðvum barnaklám á Netinu? bréf Barnaheilla dags. 16. september 2004.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2005.
- Bréf Knattspyrnusambands Íslands varðandi stærðir á íþróttavöllum, dags. 15. september 2004.
Vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.
- Menntamálaráðuneytið, um skýrsluna ?Breytt námsskipan til stúdentsprófs?, bréf dags. 16. september 2004.
Vísað til skólanefndar.
- Samband íslenskra sveitarfélaga vegna landsþings sambandsins, bréf dags 21. september 2004.
Til kynningar.
- Samkeppnisstofnun vegna erindis Galdurs ehf., bréf dags, 24. september 2004.
Til kynningar.
- Gögn frá aðalfundi SSA.
Til kynningar.
6. Önnur mál
- Stefán kynnti samningsdrög um mötuneytismál Hafnar- og Heppuskóla við Kaffi Hornið. (Einar Karlsson vék af fundi). Kristín vakti athygli á að samningurinn væri opin og fæli í sér ófyrirsjáanlegan kostnaðarauka fyrir sveitarfélagið.
- Vegna sölu á Hæðargarði 7 og breyttrar aðstöðu barna til leikja felur bæjarráð starfsmönnum sveitarfélagsins að vinna tillögur að bættri aðstöðu fyrir börn í Nesjahverfi.
- Bæjarstjóri tók til umfjöllunar erindi Búmanna sem áður hefur verið fjallað um varðandi leigu á íbúð í nýja raðhúsi samtakanna. Málinu vísað til viðeigandi aðila til umfjöllunar.
Fundi slitið kl. 12:15
Elín Magnúsdóttir Albert Eymundsson
Kristín G. Gestsdóttir Hjalti Þór Vignisson
Einar Karlsson Stefán Ólafsson


