Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
188. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 5. nóvember 2002, kl 10:00
Mætt voru: Björn E. Traustason, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 81. fundur 22. október 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 44. fundur 28. október 2002.
Kristín spurðist fyrir um stefnumótun í æskulýðs- og tómstundamálum. Stefán sagði stefnt að því að ljúka þeirri vinnu fyrir áramót.
Varðandi umfjöllun um 3. lið fundargerðarinnar vill bæjarráð taka eftirfarandi fram:
Með byggingu nýs framhaldsskóla er komin ákjósanlega aðstaða fyrir ungt fólk á Hornafirði, bæði til náms og tómstundastarfsemi. Bæjarráð leggur áherslu á að frumkvæði í félagslífi komi frá nemendum og starfsmönnum skólans. Öflugt félagsstarf ungs fólks er mjög mikilvægt og er bæjarráð tilbúið eins og áður til að leggja sitt af mörkum til að svo megi verða.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur vegna björgunaræfingar 28. otkóber 2002 til kynningar
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 32. fundur 9. október 2002 til kynningar.
· Launanefnd sveitarfélaga 16. október 2002 til kynningar.
2. Níu mánaðauppgjörn bæjarsjóðs
Ásta fór yfir 9 mánaða uppgjör bæjarsjóðs og tengdra stofnana. Skatttekjur bæjarsjóðs nema nú 77% af áætlun og rekstrargjöld 76%. Rekstur bæjarsjóðs, Hornafjarðarhafnar og kaupleigukerfisins er í stórum dráttum í samræmi við áætlanir. Miðað við 9 mánaða uppgjör Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands stefnir í 11,3 milljóna kr. tap á rekstri stofnunarinnar.
3. Rekstrarrammar deilda og stofnana sveitarfélagsins
Ásta lagði fram fyrstu drög að rekstrarrömmum deilda og stofnana 2003. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur embættismönnum að vinna áfram í samræmi við þau.
4. Erindisbréf nefnda
Bæjarráð samþykkir fram lögð erindisbréf fastanefnda sveitarfélagsins og almannavarnarnefndar með smávægilegum orðalagsbreytingum og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
5. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Flugleiðahótela hf. dags. 31. okt. 2002 - ósk um endurnýjun á leigusamningi um Nesjaskóla
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Flugleiðahótel hf. um endurnýjun á leigusamningi um Nesjaskóla til 5 ára með fyrirvara um ákveðin útgönguákvæði verði húsnæðið selt eða því ráðstafað á annan hátt.
6. Önnur mál
Ólafur spurðist fyrir um húsnæði fyrir handmenntagreinar. Stefán sagði teikningar tilbúnar en allt sé enn óljóst með framkvæmdir.
Elín bað um upplýsingar á næsta fundi um auglýsingakostnað í sveitarfélaginu og kostnað við tölvuþjónustu.
Kristín fór fram á að erindi herstöðvarandstæðinga varðandi kjarnorkuvopnalaus sveitarfélög verði tekið fyrir aftur. Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórn.
Fundi slitið kl. 11:45


