Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
189. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 14. nóvember 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 40. fundur 4. nóvember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 37. fundur 30. október 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 33. fundur 11. nóvember 2002.
Helgi sagði frá skýrslu Línuhönnunar um örverumengun og þungmálmamengun umhverfis Höfn. Skýrslan sýnir að ástandið er víða óviðunandi.
Fundargerð samþykkt.
2. Skuldabréfaútboð Landsbanka Íslands
Landsbanki Íslands hefur samþykkt skuldabréfaútboð fyrir sveitarfélagið að upphæð 100 milljónir kr. Bæjarráð frestar ákvarðanatöku um málið til næsta fundar á meðan fleiri möguleikar eru skoðaðir.
3. Drög að samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði Heilbrigðisnefndar Austurlands
· Bréf HAUST dags. 26. október 2002.
Bæjarráð samþykkir ofangreind drög og vísar til bæjarstjórnar til samþykktar.
4. Umsókn um leigu á Pakkhúsi sumarið 2003
Í ljósi samþykktar menningarmálanefndar á fundi 12. nóvember s.l.er starfsmönnum menningarmiðstöðvar og bæjarskrifstofu falið að skoða málið.
5. Ósk um umsögn á frumvarpi til sveitarstjórnarlaga, 15. mál, íbúaþing
Bæjarrráð tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.
6. Ósk um umsögn á tillögu til þingsályktunar um óhreyfð skip í höfnum og skipsflök , 14. mál
Bæjarráð tekur jákvætt í tillöguna.
7. Erindi FNA um „Símenntunaráætlanir fyrir starfsmenn sveitarfélaga“
Bæjarráð tekur jákvætt í kynningarfund á hugmyndafræði Markviss varðandi símenntunaráætlun fyrir starfsmenn sveitarfélagsins.
8. Innsend erindi og til kynningar
· Vinabæjasamstarf milli Hornafjarðar og Sisimiut Kommune, bréf dags. 8. nóv. 2002.
Til kynningar.
· Erindi foreldra barna í Hafnarskóla um samkomur í Þrykkjunni mt.t. útivistartíma, bréf dags. 4. nóv. 2002.
Bæjarráð leggur áherslu á að sátt sé um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar og telur eðlilegt að opnunartími félagsmiðstöðvar sé í samræmi við reglur um útivistartíma barna. Bæjarráð felur æskulýðs- og tómstundaráði að móta reglur um opnunartíma félagsmiðstöðvarinnar.
· Námstefna í aðgerðastjórnun fyrir m.a. almannavarnanefndir, bréf dags. 7. nóv. 2002.
Til kynningar.
· Erindi lögreglunnar á Höfn um öryggi gangandi vegfarenda í Nesjum, bréf dags. 22. okt. 2002.
Bæjarstjóra er falið að hafa samband við Vegagerðina um málið.
· Úthlutun tekjujöfnunarframlaga 2002, bréf Félagsmálaráðuneytis 21. okt. 2002.
Til kynningar.
· Erindi sveitarstjórnar Djúpavogshrepps um „Umferða og umferðaröryggi á Öxi“ bréf dags. 5.nóv. 2002.
Til kynningar.
· Samantekt könnunar á notkun tóbaksvarnanámsefnis, bréf Tóbaksvarnanefndar og Krabbameinsfélagsins dags. 8. otk. 2002.
Til kynningar.
· Helstu tillögur undirbúningsnefndar umhverfisráðuneytisins um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
· Skýrsla Deloitte & Touche um: „Úttekt á hafnarrekstri og tillögur um sparnað“ Hafnarsjóður Hornafjarðar, í maí 2002.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Ásta sagði frá væntanlegum kauptilboðum í tvær íbúðir sveitarfélagsins. Bæjarráð veitir fjármálastjóra umboð til að ganga frá sölu íbúðanna.
Ásta upplýsti um auglýsingakostnað sveitarfélagsins.
Kristín spurðist fyrir um löggæslu í sveitarfélaginu. Bæjarstjóri sagði að beðið væri eftir minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu og að fundað verði um málið þegar það liggur fyrir.
Fundi slitið kl. 11:45


