Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
190. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 21. nóvember 2002, kl 9:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Heimsókn forstöðumanna stofnana sveitarfélagsins
Eftirfarandi forstöðumenn mættu á fundinn, fóru yfir rekstrarramma og beiðni um stofnbúnað:
Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri Hafnarskóla, Jóhann Moravek skólastjóri Tónlistarskóla Austur-Skaftafellssýslu, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla, Þorbjörg Arnórsdóttir skólastjóri Hrollaugsstaðaskóla (símafundur), Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri á Krakkakoti, Haukur Þorvaldsson æskulýðs og tómstundafulltrúi, Kjartan Jónsson forstöðumaður áhaldahúss og Valur Sveinsson starfsmaður tækni- og umhverfissviðs. Einnig fóru framkvæmdastjórar yfir ramma og stofnbúnaðaróskir deilda.
2. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 4. fundur 18. nóvember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 45. fundur 13. nóvember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 82. fundur 12. nóvember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 41. fundur 18. október 2002.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 42. fundur 12. nóvember 2002.
Fundargerðir menningarmálanefndar samþykktar.
· Starfshópur um merkingar og áningarstaði 1. fundur 7. nóv. 2002. til kynningar.
· Þjónustuhópur aldraðra 12. fundur 19. nóvember 2002.
Fundargerð samþykkt.
· Launanefnd sveitarfélaga og sjúkraliðafélags Íslands 18. fundur 11. nóv. 2002 til kynningar.
· Launanefnd sveitarfélaga 183. fundur 6. nóvember 2002 til kynningar.
3. Fjárhagsáætlun 2003
Lögð voru fram drög að rekstrar - , stofnbúnaðar - og styrkjarömmum. Einnig yfirlit yfir meiri háttar viðhald og forgangsröðun framkvæmda.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar 2003 í samræmi við fram lögð drög og umræðu á fundinum.
4. Reglur um farandssölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjarráð samþykkir fram lögð drög með fyrirvara um að kannað verði hvort heimilt sé að synja um farandsölu í tengslum við Humarhátíð.
5. Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Bæjarráð samþykkir fram lögð drög .
6. Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins í ráðgjafarnefnd Þjóðgarðsins í Skaftafelli
Bæjarráð samþykkir að Halldóra B. Jónsdóttir verði fulltrúi sveitarfélagsins í nefndinni.
7. Innsend erindi og til kynningar
· Endurskoðun á heildarskipulagi og rekstri Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Umræðu um skýrsluna frestað til næsta fundar bæjarráðs.
· Bréf kennara við Jarð- og landfræðiskor Háskóla Íslands dags. 14. október.
Til kynninga.
· Breytingar á viðmiðunarreglum og ums. um fjárframlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fyrir fjárhagsárið 2003 bréf Fjármálaráðuneytisins 13. nóv. 2002.
Til kynningar.
· Upplýsingar frá tæknideild vegna fyrirspurnar Reynis Arnarsonar um lausar lóðir í sveitarfélaginu 24. okt. s.l..
Helgi fór yfir hvaða lóðir eru tilbúnar til úthlutunar á Leirusvæði.
· Íslenskar sveitir – rástefna 29. nóvember 2002.
Til kynningar
8. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 14:30


