Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 263
263. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 9. september 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 113. fundur 24. ágúst 2004.
Birgir Kjartansson félagsmálastjóri mætti á fundinn og fór yfir þær reglur sem eru í mótun hjá ráðinu.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 61. fundur 1. september 2004.
Bæjarráð gerir athugasemd við 7. lið fundargerðarinnar og lítur ráðið svo á að kostnaðarskipting milli viðhalds og stofnbúnaðar sé ekki fullfrágengin. Eignarhald á félagsheimilum og íþróttamannvirkjum kom til umræðu. Bæjarráð leggur til að farið verði yfir eignarhald á viðkomandi húsum og mannvirkjum og felur starfsmönnum sínum að hefja þá vinnu.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um endurskoðun á ákvörðun um greiðslu skólavistar utan lögheimilissveitarfélags
Samþykkt að vísa erindinu til umfjöllunar í skólanefnd.
3. Stækkun Skaftafellsþjóðgarðs
Bæjarráð Hornafjarðar fagnar ákvörðun ríkistjórnarinnar og umhverfisráðherra um að stíga strax næsta skref í þeim áformum að gera Vatnajökulsþjóðgarð að veruleika.
Stækkunin mun ná yfir allt land ríkisins á jökli innan sveitarfélagsins.
Bæjarráð telur að hér sé um mikið hagsmunamál að ræða fyrir íbúa Austur-Skaftafellssýslu og reyndar landsmenn alla. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að þjóðgarðurinn í Skaftafelli verði stækkaður samkvæmt 51. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd.
Vegna hagsmuna fjölda aðila sem tengjast málinu leggur bæjarráð mikla áherslu á að fari fram vönduð kynning og umfjöllun um málið heima í héraði áður en gengið verður frá reglugerð og erindisbréfum tengdum henni, s.s. fyrir þjóðgarðsvörð og ráðgjafanefnd.
Jafnframt er bæjarráð sammála umhverfisráðherra og umhverfisráðuneytinu um að vinna sameiginlega að reglugerð vegna stækkunar þjóðgarðsins í Skaftafelli og framkvæmd hennar með það að markmiði að stækkunin þjóni sem best hagsmunum allra aðila.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs og frekari samvinnu við umhverfisráðuneytið og Skaftárhrepp um gerð nýrrar reglugerðar fyrir þjóðgarðinn.
4. Ósk um styrk
• Tölvubréf Svavars Sigurðssonar dags. 3. september 2004
Bæjarráð telur ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
5. Innsend erindi og til kynningar
• Tilkynning frá Fjárlaganefnd Alþingis, dags. 4. september 2004.
Bókaður hefur verið fundur forystumanna sveitarfélagsins með Fjárlaganefnd mánudaginn 27. september n.k. kl.13.
• Bréf Félagsmálaráðuneytis v/útgjaldajöfnunarframlaga, dags. 2. September 2004.
Til kynningar.
• Bréf Hauks Haukssonar v/Hússins á Egilssöðum, dags. 15. júlí 2004.
Bæjarráð telur ekki að starfsemi Kaffi- og Menningarhúss Ungmenna á Austurlandi muni nýtast hornfirskum ungmennum og hafnar því aðkomu að verkefninu.
• Bréf Heiðars Sigurðssonar v / verslum í heimabyggð, dags. 26. ágúst 2004.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
• Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga v/verkfallsboðunar grunnskólakennara dags. 3. september 2004.
Til kynningar.
• Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga v/svars við erindi Félags meindýraeyða, dags. 2. september 2004.
Til kynningar.
• Gögn vegna aðalfundar SSA 16.-17. september 2004 - til kynningar (höfð sér)
6. Önnur mál
Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs kynnti bréf frá kennurum 8. bekkjar nema í Sisimiut á Grænlandi en fyrirhuguð er heimsókn 27 nemenda og 3ja kennara þaðan næsta vor.
Bæjarráð fagnar fyrirhugaðri heimsókn og hvetur til þess að tengslum verði komið á sem fyrst á milli kennara og nemenda í báðum skólunum.
Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs lagði fram minnisblað um stöðu mála varðandi skólamáltíðir í Hafnar- og Heppuskóla.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við tillögur minnisblaðsins sem dags. er 8. sept. 2004.
Bæjarstjóri sagði frá umsóknum sem bárust í stöðu framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs og framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
Halldóra hvatti til þess að langtímalán sveitarfélagsins verði skoðuð í ljósi lækkandi vaxta í samfélaginu.
Fundi slitið kl.


