Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 262
262. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 26. ágúst 2004, kl 08:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 60. fundur 10. ágúst 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 59. fundur 12. ágúst 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar 62. fundur 12.ágúst 2004
Rætt var um mötuneytismál, bæjarráð er sammála því að unnið verði að heilstæðri lausn á mötuneytismálum stofnana sveitarfélagsins m.a. með úthýsingu í huga. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að vinna að lausn í vetur vegna mötuneytismála í Hafnar og Heppuskóla með þeim forsendum að greiða allt að kr. 130.- með hverri máltíð, valdagar eigi ekki rétt á sér og innheimta verði á vegum sveitarfélagins. Nemendur skulu skrá sig í fæði alla önnina.
Fyrirspurn varðandi biðlista á leikskólum og hvort öll þau börn sem voru á Óla prik hafi fengi vistun á þeim. Framkvæmdastjóri fræðslusviðs svarar þessu á næsta fundi. Bæjarráð telur að leikskólar og grunnskólar eigi að hafa sitt hvorn fulltrúann í starfshóp fyrir skólamálþingið og starfsmaður starfshópsins verði framkvæmdastjóri fræðslusviðs. Halldóra telur mikilvægt að ákveða dagsetningu á skólamálaþingi sem fyrst og að fyrirvari þurfi að vera það góður að hægt sé að fá fyrirlesara. Því eigi að stefna að því að halda það í janúar eða febrúar.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn á setu á jörð
• Bréf Kristins Péturssonar dags. 30. apríl 2004.
Bæjaráð staðfestir að Kristinn Pétursson hefur setið ábýlisjörð sína, Sauðanes í Nesjum.
3. Beiðni um umsagnir á útgáfu gistileyfa
• Bréf sýslumannsins á Höfn v/ umsóknar um leyfi til reksturs gistiskála að Lækjarhúsum dags. 16. júlí. 2004.
• Bréf sýslumannsins á Höfn v/ umsóknar um endurnýjun gistileyfis fyrir Farfuglaheimilið Nýjabæ dags. 9. ágúst 2004.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu gistileyfanna.
4. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra dags. 10. ágúst 2004. Bæjarráð vísar málinu til æskulýðs- og tómstunaráðs.
5. Önnur mál
Bæjarstjóri dreifði tilkynningu til sveitarstjórna um úthlutun á byggðakvóta.
• Birgir Kjartansson félagsmálastjóri mætti á fundinn og kynnti málefni skjólstæðings.
• Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags dags. 24/8 2004.
Bæjarráð getur ekki samþykkt umsóknina og vísar málinu til fræðslu- og félagsmálasviðs.
• Fjallað var um málefni þjóðgarða.
• Rekstraryfirlit bæjarsjóðs dags. 18/8 lagt fram til kynningar
• Rekstraryfirlit HSSA dags. 31/7 lagt fram til kynningar
• Halldóra ræddi um vinnubrögð Vegagerðarinnar varðandi merkingar á línu
á þjóðveg eitt og síðan viðgerðir á eftir.
Einnig spurðist hún fyrir um upplýsingaskilti á Lónsafleggjara.
Fundi slitið kl. 12:15


