Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
196. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 16. janúar 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd 40. fundur 9. janúar 2003.
Elín spurði um kross á lóð Hvítasunnusafnaðarins og þá breytingu á starfsemi í húsinu sem orðið hefur frá fyrri tíð en þar var áður iðnaðarstarfsemi. Nokkuð var rætt um hæð krossins. Ekki var gerð formleg athugasemd við afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar. (Elín sat hjá við afgreiðslu á öðrum lið fundargerðarinnar.)
Bæjarráð óskar frekari upplýsinga um byggingu skemmu við Horn en ekki virðast liggja fyrir heimildir yfirvalda fyrir byggingunni. Einnig var rætt um efnistöku í fjallshlíðum í landi Horns og spurt hver gefi leyfi til að opna námur. Samþykkt að starfsmenn tæknisviðs skoði þetta mál betur.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 86. fundur 7. janúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 39. fundur 13. janúar 2003.
Kristín spurði um fjárhagsáætlun og einnig stöðu nýs þjónustusamnings við heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti. Halldóra sagði þessi tvö mál tengjast. Sagði ný drög að samningi vera hagstæðari um 12 millj. sem hefði áhrif á niðurstöður fjárhagsáætlunar. Einnig spurt um starfsmannamál. Aðeins einn læknir er fastráðinn auk lækna sem starfa tímabundið. Þá er fyrirséð að ráða þurfi a.m.k. þrjá nýja hjúkrunarfræðinga til vors í stað þeirra sem eru að hætta.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 35. fundur 13. janúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um eftirfylgni við stefnu sveitarfélagsins í atvinnumálum 2. fundur 8. janúar 2003 - til kynningar.
· Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 1. fundur 14. janúar 2003 - til kynningar.
Fram kom ánægja með að skriður skuli kominn á þetta mál.
2. Fjárhagsáætlun 2003
· Eignasjóður
Ásta lagði fram yfirlit yfir eignatilfærslur frá aðalsjóði í eignarsjóð þar sem m.a. kemur fram að vextir reiknast 4,5%, afskriftir 2,5%, árafjöldi afborgana verði 15 ár hjá eignarsjóði, 5 ár hjá þjónustumiðstöð og 25 ár hjá vatnsveitu og endurgreiðsla lána milli sjóða hefjast 1. júlí 2004. Bæjarráð samþykkir framlagt yfirlit. Einnig kynnti Ásta breytingu á fjárhagsáætlun vegna eignasjóðs.
Lagt fram uppgjör vegna Nýheima. Samkvæmt uppgjöri þessu er heildarkostnaður við verkið um krónur 466,5 milljónir. Ásta telur mikilvægt að ganga frá eignaskiptum vegna Nýheima.
3. Skipan í þjónustuhóp aldraðra
Eftirtaldir eru skipaðir í þjónustuhóp aldraðra:
Baldur Thorsteinsen, læknir
Guðrún Júlía Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Vilborg Einarsdóttir, fulltrúi samtaka eldri borgara
Birgir Kjartansson, félagsmálstjóri
Maren Ó. Sveinbjörnsdóttir, fulltrúi málefna fatlaðra, sem jafnframt gegnir formennsku í nefndinni.
Hópurinn heldur fundi eftir því sem þörf krefur og er það breyting á fyrra erindisbréfi þjónustuhópsins.
4. Útboðsreglur fyrir sveitarfélagið - drög
Helgi kynnti fyrirliggjandi drög og svaraði fyrirspurnum. Að öllu jöfnu skal vinna formleg útboðsgögn hljóði kostnaðaráætlun upp á eina milljón eða meira. Drög að útboðsreglum samþykkt.
5. Umsókn um leigu á Holti á Mýrum
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við sambýlið Hólabrekku um leigu á efri hæð í Holti á Mýrum. Lögð er áhersla á að íbúar á sveitarfélagsins geti notað húsið áfram til funda- og samkomuhalds með svipuðu sniði og verið hefur.
6. Samningur við Flugleiðahótel um leigu á hluta Nesjaskóla
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjand samningsdrög og felur bæjarstjóra að ganga frá undirskrift samningsins.
7. Menningarráð Austurlands
Signý Ormarsdóttir mætti á fundinn og kynnti starfsemi Menningarráðs Austurlands. Sagði hún ánægjulegt hversu fljótt og vel sveitarfélagið brygðist við óskum um kynningu sem þessa. Lagði hún m.a. áherslu á að menning sé orðin atvinnugrein. Sagði hún mikilvægt að auglýsing viðburða á þessu sviði fari fram á fjórðungsvísu. Fyrir fundinn höfðu nefndarmönnum borist úthlutunarreglur vegna verkefnastyrkja en umsóknir um styrki þurfa að hafa borist fyrir14. febrúar n.k.
8. Heimsókn skólanefndar FAS
Skólanefndarmennirnir Þorgils Baldursson, Björn Traustason og Aðalsteinn Aðalsteinsson mættu á fundinn ásamt skólameistara, Eyjólfi Guðmundssyni. Halldóra byrjaði á að fjalla um þjónustusamning á milli Framhaldsskólans og Menningarmiðstöðvar. Ekki hefur náðst samkomulag um greiðslur Framhaldsskólans fyrir þessa þjónustu. Eyjólfur byrjaði á að þakka fyrir þennan fund. Fór hann yfir fjármál skólans. Sagði hann stöðuna hafa verið erfiða á haustmánuðum og skuldir hrannast upp. Það stafi fyrst og fremst af því að nemendur reyndust fleiri á haustönn 2002 en gert var ráð fyrir í forsendum fjárlaga fyrir árið. Þetta leiddi m. a. til aukins kennslukostnaðar á önninni. Töluverð breyting til batnaðar hefur orðið á skuldastöðunni að sögn Eyjólfs og vonir standa til að mismunur ársins 2002 verði bættur þannig að staðan verði þokkaleg í lokauppgjöri ársins. Eyjólfur fór yfir möguleika skólans á greiðslum fyrir bókasafnsþjónustu Menningarmiðstövar. Sagði skólann ekki geta greitt það sem fram á er farið. Í framhaldi af þessu var rætt um samskipti sveitarfélags og skólans, starfsskyldur skólanefndar, stefnu skólans og framtíðarhorfur.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Erindi starfsfólks leikskólanna á Hornafirði vegna líkamsræktar, bréf dags. 8. janúar 2003.
Bæjarráð telur ekki fært að sveitarfélagið greiði niður kostnað vegna líkamsræktar starfsmanna.
· Lánasjóður sveitarfélaga v. lánsumsókna, bréf dags. 8. janúar 2003.
Samþykkt að sækja um hámarkslán, m. a. með það í huga að skuldbreyta óhagstæðari lánum.
· Kynning á vinnufundi v. fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda á Austurlandi.
Bæjarráð lýsir ánægju með að atvinnurekendur hafi tekið höndum saman um samstarf á þessu sviði, m. a. með því að setja á fót samstarfsnefnd. Næsti fundur nefndarinnar verður 21. janúar nk. kl. 16 - 19 í Nýheimum.
· Málþing um Vatnajökulsþjóðgarð og Jöklasetur 17. janúar í Nýheimum.
10. Önnur mál
· Umsókn um greiðsluþátttöku vegna náms í tónlistarskóla á Egilsstöðum Fjöldi hornfirskra nemenda á framhaldsskólaaldri stundar að eigin frumkvæði nám við ýmsa sérskóla, víða um land, sem ekki falla undir skólaskyldu. Bæjarráð telur það ekki skyldu sveitarfélagsins að taka þátt í kennslukostnaði við slíka skóla og hafnar því umsókninni.
· Halldóra ræddi fyrri hugmyndir um að Landsbankinn kæmi hér á fót tölvudeild. Samþykkt að bæjarstjóri vinni að þessu máli áfram og kanni möguleika á að Landsbakinn komi upp slíkri deild á Hornafirði.
· Kynnt bréf frá Gerði Sæmundsdóttur hjúkrunarfræðingi sem hrósar uppbyggingu heilbrigðis- og öldrunarmála á Hornafirði.
Fundi slitið kl. 14:10


