Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
198. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 4. febrúar 2003, kl 14:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 47. fundur 28. janúar 2003.
Spurt um laust húsnæði á vegum Sveitarfélagsins, kom fram að engar íbúðir væru lausar eins og er nema í Hraunhóli í Nesjum. Hinsvegar væri þörf fyrir 3ja herb. Íbúðir eins og ástandið er núna.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 44. fundur 22. janúar 2003.
Bæjarráð vísar til tæknideildar að fylgst verði með úttekt á notkunarmöguleikum Vöruhússins með það í huga hvort hægt sé að nýta hluta þess undir söfn Sverrir Scheving. Bæjarráð tekur undir bókun menningarmálanefndar varðandi varðveislu minja á Stokksnesi.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 47. fundur 27. janúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um eftirfylgni við stefnu sveitarfélagsins í atvinnumálum 3. fundur 29. janúar 2003 .
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2003
Ásta fór yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætluninni frá fyrri umræðu. Gert er ráð fyrir að sameiginlegur kostnaður hækki um 600 þúsund vegna vinabæjarsamstarfs og að 2,5 milljónir þurfi til að ljúka framkvæmdum við Nýheima. Lántökur hækka sem þessu nemur og verða 62 milljónir. Áætlaðar millifærslur vegna breytinga á bókhaldsreglum eru þær að reiknuð húsaleiga í aðalsjóði nemur tæpum 120 milljónum. Vaxtatekjur aðalsjóðs vegna sölu fasteigna í eignasjóð eru áætlaðar 36,4 milljónir og umsýslugjöld rúmar 8 milljónir. Breytingar á millifærslum í eignasjóði eru þær að reiknuð húsaleiga til stofnana sveitarfélagsins nemur tæpum 122 milljónum, afskriftir eru upp á 35,6 milljónir, vextir 30,6 milljónir og umsýsla tæpar 7 milljónir. Tekjur vegna millifærslna í eignasjóði nema því tæpum 49 milljónum. Hjá þjónustumiðstöð reiknast húsaleiga upp á rúmar 2 milljónir, afskriftir tæpar 2 milljónir og vextir 700 þúsund. Hjá Vatnsveitu er gert ráð fyrir afskriftum, vöxtum og umsýslu upp á 10,7 milljónir. Samstæðureikningur sveitarfélagsins gerir ráð fyrir 46,8 milljóna halla, þar af eru reiknaðar afskriftir 42,1 milljón þannig að niðurstaðan er 4,6 milljónir í halla.
Bæjarráð staðfestir úthlutanir styrkja vegna 2003.
3. Gjaldskrá sundlaugar 2003
Bæjarráð samþykkir fram lagða gjaldskrá fyrir sundlaugina 2003.
4. Lánsfjármögnun
Bæjarráð felur fjármálastjóra að leita hagstæðra langtímalána, allt að160 milljónum kr.
5. Beiðni umhverfisráðuneytis um tilnefningu í Vatnajökulsnefnd
Bæjarráð tilnefnir eftirtalda fulltrúa í Vatnajökulsnefnd:
Halldóru B. Jónsdóttir og Ólaf Sigurðsson.
6. Ósk um samþykki sveitarstjórnar á að SSA tilnefni fulltrúa í Hreindýraráð
Bæjarráð samþykkir að SSA tilnefni fulltrúa í Hreindýraráð.
7. Ósk um umsögn vegna landskipta á jörðinni Brunnavöllum og lóðarleigusamnings á spildu úr jörðinni Skálafelli I
Bæjarráð samþykkir landskipti á jörðinni Brunnavöllum en fram kemur í framlögðum gögnum að jarðanefnd hefur þegar samykkt skiptin.
Bæjarráð samþykkir lóðarleigusamning þar sem Kistugili ehf. er leigt 1,1 ha. landspilda úr jörðinni Skálafell I með fyrirvara um samykki jarðanefndar.
8. Heimsókn Einars Þorvarðarsonar, Sveins Jónssonar og Reynis Guðmundssonar frá Vegagerðinni
Fulltrúar frá Vegagerð mættu á fund bæjarráðs og ræddu samgöngumál. Fram kom að áætlað er að hefja framkvæmdir við nýtt vegsvæði yfir Hornafjarðarfljót 2006 og að þær muni taka um 3 ár. Áfram verður unnið að fækkun einbreiðra brúa í sveitarfélaginu og reiknað með að þeim fækki um 1-2 á ári. Rætt var um að gera lágmarksúrbætur á veginum um Almannaskarð og stefna að gerð jarðgangna í framtíðinni.
9. Heimsókn fulltrúa ungmenna
Fimm fulltrúar ungmenna mættu á fundinn til að ræða um hugsanlega uppbyggingu á tómstunda- og afþreyingahúsi. Rætt var um að fjögurra ára tilraunatími væri æskilegur fyrir verkefnið þar sem ýmsir aðilar kæmu að málum, m.a. Rauði kross Íslands, sveitarfélagið, fyrirtæki ofl. Bæjarráð fagnar frumkvæðinu hjá fulltrúunum sem mættu á fundinn, telur hugmyndina góða og hyggst skoða málið frekar.
10. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 17:15


