Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 261
261. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 12. ágúst 2004, kl 08:00
Mætt voru: Elín magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir. Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1.Fundargerðir
• HAUST 48. fundur Heilbrigðisnefndar Austurlands 30. júní 2004- til kynningar
2. Tillaga nefndar um mötuneytismál fyrir skólaárið 2004 – 2005
Halldóra rakti aðdraganda þess að nefndin var skipuð. Stefán fór yfir tillögur nefndarinnar en þær eru að nemendum Hafnar- og Heppuskóla standi til boða matur úr mötuneyti frá og með byrjun næsta skólaárs.
Ákvörðun um málið frestað..
3. Gjaldskrá lengdrar viðveru skólaárið 2004 - 2005- drög
Bæjarráð samþykkir fram lögð drög að gjaldskrá fyrir lengda viðveru.
4. Sala á Hæðargarði 7, Nesjahverfi
Bæjarráð samþykkir að selja eignina.
5. Lausaganga búfjár á Silfurnesvelli
• Bréf dags. 5. ágúst 2004 frá Golfklúbbi Hornafjarðar.
Í bréfi Golfklúbbs Hornafjarðar kemur fram að ítrekað hefur þurft að reka sauðfé og hross af svæði félagsins og að miklar skemmdir hafi orðið á svæðum sem nýlega hefur verið sáð í.
Bæjarstjóri sagði að starfsmönnum sveitarfélagsins hafi verið falið að taka allt fé í lausagöngu sem kemur inn fyrir bæjarmörkin í vörslu og ganga úr skugga um hverjir eigendur þess eru.
Í 5. gr. samþykktar um búfjárhald á Höfn nr. 125/1993 segir m.a.:
„Eigendum ágangsfénaðar ber að greiða allan kostnað af handsömun og geymslu fénaðarins, svo og allt það tjón sem hann kann að hafa valdið. Við ítrekað brot skal ágangsfénaði slátrað og frálagsverð látið mæta áföllnum kostnaði“
Bæjarráð hvetur eigendur búfjár í nágrenni Hafnar til að gæta að skepnum sínum svo koma megi í veg fyrir óþægindi og kostnað sem lausaganga þess innan bæjarmarkanna hefur í för með sér.
6. Styrkbeiðni
• Bréf dags. 2. ágúst frá Þorsteini Grétari Sigurbergssyni.
Bæjarráð telur ekki fært að verða við styrkbeiðninni nú en bendir á að hægt er að sækja um styrki í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2005.
7. Heimsókn aðila í Undirbúningsfélagi um stofnun fuglaathugunarstöðvar á Höfn
Brynjúlfur Brynjólfsson kom á fundinn fyrir hönd undirbúningsfélags um stofnun fuglaathugunarstöðvar til að kynna stöðu verkefnisins. Lagði m.a áherslu á tengsl við skóla, ferðaþjónustu og háskólasetur.
8. Innsend erindi og til kynningar
• Akureyrarbær, bréf dags. 29. júlí 2004 um málþing um Staðardagskrá 21.
Erindinu er vísað til tækni- og umhverfissviðs.
• Brunabót, bréf dags. 27. júlí 2004 um ágóðahlutagreiðslu 2004.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 9:45


