Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
199. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 13. febrúar 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Valur Sveinsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Fundargerð síðasta fundar tekin fyrir og samþykkt.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafna, aukafundur 8. febrúar og 44. fundur 10. febrúar 2003.
Ólafur spurði um ruslagáma á hafnarsvæðinu. Bæjarstjóri sagði að ekki verði allir gámar teknir í burtu en dregið úr þjónustu. Ekki hefur verið greitt fyrir þessa þjónustu.
Fundargerð samþykkt.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 5. fundur 27. janúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Fundur samstarfsnefndar LN og SSB dags. 6. febrúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
2. Samningur um sérfræðiþjónustu vegna tölvu- og upplýsingakerfis
Inga Jóna fór yfir samningsdrögin. Bæjarráð heimilar framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá samningi skv. fyrirliggjandi drögum.
3. Rammasamningur um 2. áfanga við hjúkrunarheimili
Bæjarráð samþykkir rammasamninginn með fyrirvara um að meðferð greiðslna eignaraðila verði í samræmi við samkomulag ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 4. desember og væntanlegar lagabreytingar.
4. Ósk um niðurfellingu gjalda
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda vegna umsóknar dags. 29. janúar 2003.
Ásta kynnti erindi um niðurfellingu fasteignagjalda. Bæjarráð samþykkir niðurfellingu gjalda að upphæð kr.172.015.
5. Ósk um aukafjárveitingu til kaupa á ljósritunarvél í Hafnarskóla
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu sem tekin verður af liðnum óráðstafað að upphæð kr. 700.000 til kaupa á ljósritunarvél.
6. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um vatnsveitur sveitarfélaga
Bæjarráð Hornafjarðar gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.
7. Tækni og umhverfissvið – minnisblað
Rætt var förgun á brotajárni. Einnig var rætt um hálkueyðingu og samþykkt að tækni- og umhverfissvið meti til hvaða aðgerða verði gripið hverju sinni. Bæjarráð samþykkti að taka gagntilboði frá G. Þorsteinssyni upp á 1 milljón kr. vegna ljósabúnaðar í Nýheimum. Kynntar voru starfsreglur um eftirlit og viðhald á leiktækjum opinna svæða í sveitarfélaginu. Samþykkt var hvernig verja eigi þeim 2,5 milljónum sem ætlaðar eru til lokaframkvæmda í Nýheimum.
8. Vinabæjamót í Samsö 29. maí – 1. júní 2003
Bæjarráð samþykkir að styrkja einn fulltrúa frá hverju framboði til að sækja vinabæjarmótið í Samsö. Hver fulltrúi fær kr. 100.000 í styrk.
Bæjarráð ræddi um að tímabært sé að endurskoða vinabæjarsamskipti og skoða jafnframt önnur form á erlendum samskiptum (verkefnatengdum) sem hugsanlega skili meiri árangri.
9. Innsend erindi og til kynningar
· Átak í leit að jarðhita – bréf umsjónarmanns dags. 29. janúar 2003.
Til kynningar.
· Bréf umboðsmanns barna dags. 31. janúar 2003.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs.
· Landsýn – ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri 26.-27. febrúar 2003.
Erindinu beint til tækni- og umhverfissviðs.
· Bréf frá Hótel Höfn dags. 29. janúar 2003.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að svara erindinu.
· Ég er húsið mitt – erindi dags. 25. janúar 2003.
Erindið vísað til fræðslu- og félagssviðs.
· Reglugerðum þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur fatlaðra barna dags. 6. febrúar 2003.
Til kynningar.
10. Önnur mál
Göng undir Almannaskarð
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir mikilli ánægju með ákvörðun um gerð jarðganga undir Almannaskarð og telur að hér sé um mikla samgöngubót að ræða sem koma muni öllum landsmönnum til góða.
Þjónustusamningur um fyrirkomulag heilbrigðis- og öldrunarþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu
Bæjarstjóri fór yfir ný drög þar sem smávægilegar leiðréttingar hafa verið gerðar frá fyrri drögum. Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Upplýsingamiðstöð
Bæjarstjóri upplýsti að búið er að ganga munnlega frá framlengingu samnings við Þjónustumiðstöð SKG um rekstur upplýsingamiðstöðvar á Hafnarbraut 52 á þessu ári.
Lögð voru fram drög að ábendingum frá FagHöfn, faghópi atvinnurekenda til sveitarstjórnar vegna fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda á Austurlandi.
Rafrænt samfélag
Samþykkt var að boða þá aðila sem sýnt hafa verkefninu áhuga á næsta fund bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 11:55


