Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 193
193. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 12. desember 2002, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Röð dagskrárliða var breytt og fyrst tekinn fyrir skýrsla Línuhönnunar
1. Skýrsla Línuhönnunar um flokkun vatna í Hornafirði
Hafsteinn Helgason og Jón Skúli Indriðason starfsmenn Línuhönnunar mættu á fundinn og kynntu skýrsluna. Einnig dreifðu þeir skýrslu um rennslismælingar og efnagreiningar.
Samkvæmt skýrslum Línuhönnunar er gengið út frá því við hönnun fráveitukerfisins að lágmarka fjárfestingu, rekstrarkostnað og áhættu fyrir umhverfið. Samkvæmt áætlun er áætlaður heildarkostnaður við verkið 169 milljónir.
Skýrslur Línuhönnunar staðfesta brýna þröf á fráveituframkvæmdum.
2. Fundargerðir
- Byggingarnefnd Nýheima 49. fundur 27. nóvember 2002.
Fundargerð samþykkt.
- Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 42. fundur 9. desember 2002.
Fundargerð samþykkt.
- Umhverfisnefnd Hornafjarðar 34. fundur 9. desember 2002.
Bæjarráð telur að verkefnið „ Vistvernd í verki“ falli undir staðardagskrárverkefnið og fjármagnist af þeim lið.
Fundargerð samþykkt.
3. Fjárhagsáætlun 2003
Ásta fór yfir breytingar sem orðið hafa á fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs. Að öðru leiti er fjárhagsáætlun bæjarsjóð og tengdra stofnana óbreytt frá síðasta fundi.
4. Breytingar á bókhaldsreglum – eignasjóður
Ásta fór yfir fyrstu drög að eignarsjóði sveitarfélagsins.
5. Jarðhitaleit – næstu skref
Lagðir voru fram minnispunktar frá Ómari Bjarka Smárasyni varðandi hugsanlegt framhald jarðhitarannsókna í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um fullan styrk fyrir 17. des. n.k. í átakið „Jarðhitaleit á köldum svæðum“
6. Innsend erindi og til kynningar
- Sveitarstjórnarnámskeið 15.-16. og 22 og 23. febrúar – breyting frá fyrri dagsetningum.
Til kynningar.
- Bréf frá Varasjóði húsnæðismála dags. 9. desember 2002.
Til kynningar.
- Bréf frá Landgræðslu ríkisins dags. í nóvember 2002.
Til kynningar.
Bæjarstóri dreifði gögnum varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir við fyrirhleðslur við Jökulsá í Lóni.
- Bréf frá Galdri ehf. varðandi lénið hornafjordur.is.
Bæjarráð fjallaði um bréfið og var sammála um standa við fyrri ákvöðun um lán á léninu hornafjordur.is. Bæjarráð ítrekar að æskilegt sé að vefurinn fari í loftið sem fyrst.
7. Önnur mál
Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku við Breiðárlón á Breiðamerkursandi.
Bæjarráð veitir Vegagerðinni umbeðið framkvæmdaleyfi.
Inga Jóna kynnti drög að breytingu á launum starfsmanna í Hafnar- og Heppuskóla sem vinna blönduð störf.
Bæjarráð samþykkir drög með þeim fyrirvara að kostnaðarauki rúmist innan ramma stofnanna.
Fundi slitið kl. 13:00


