Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 260
260. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 29. júlí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Einar Karlsson og Reynir Arnarson . Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Byggingar- og skipulagsnefnd 54. fundur 22. júlí 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 715. fundur 25. júní 2004.
Til kynningar.
2. Erindisbréf undirbúningsnefndar um náttúrustofu á Suðausturlandi
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir fram lögð drög að erindisbréfi undirbúningsnefndar um náttúrustofu á Suðausturlandi.
3. Kostnaðarmat útrása vegna hönnunar á nýju fráveitukerfi
Í fram lögðum gögnum kemur fram kostnaðarmat við gerð útrása skv. tillögu 3 og 4 í skýrslu sem Hafsteinn Helgason verkrfæðingur hjá Línuhönnunn vann fyrir Sveitarfélagið.
Gerð útrásar skv. tillögu nr. 4 er ódýrari en ef leið skv. tillögu 3 yrði valin, kostar rúmar 22 millj. kr á móti 27 millj. kr kostnaði við leið nr 3.
Bæjarráð samþykkir að í lokaskýrslu um hönnun fráveitukerfis Sveitarfélagsins verði miðað við að leið nr. 4 verði valin.
4. Sparkvöllur
• Staðsetning og framkvæmd
Kynnt voru drög að samstarfssamningi milli Sveitarfélagsins og Ungmannafélagsins Sindra, aðalstjórn um að að vinna sameiginlega að uppbyggingu sparkvallar KSÍ við íþróttahúsið.
Bæjarstjóri lagði til að fjármunum sem fengust við sölu líkamsræktartækja sveitarfélagsins verði verið til framkvæmda við sparkvöllinn.
Tillaga tækni- og umhverfissviðs er að völlurinn verði settur samsíða íþróttahúsi og nái þá u.þ.b. 60 cm út fyrir gafla hússins hvoru megin.
Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn, tillögu tækni- og umhverfissviðs um staðsetningu vallarins og tillögu bæjarstjóra um ráðstöfun fjármuna v. sölu líkamsræktartækjanna.
5. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá Fjarðabyggð dags. 20. júní 2004 v. hugsanlegrar byggingar fjölnota íþróttahúss.
Bæjarráð vísar erindinu til æskulýðs- og tómstundaráðs til umsagnar.
• Bréf frá Samband íslenskra sveitarfélaga dags. 16. júlí 2004 þar sem hvatt er til átaks til að draga úr hættu á slýsum vegna ákeyrslu á búfé.
Sveitarfélagið Hornafjörður er tilbúið til að koma að viðræðum við alla hagsmunaaðila og leita lausna til þess að draga úr þeirri slysahættu sem lausaganga búfjár við þjóðveg 1 skapar.
6. Önnur mál
Kynnt bréf frá Þjónustumiðstöð SKG dags. 27. júlí sl. v. húsbíla sem lagt er innan bæjarmarka.
Bæjarráð samþykkir að lögreglusamþykkt Sveitarfélagsins verði endurskoðuð m.a. með tilliti til ákvæða um hvar tjalda má og leggja húsbílum innan bæjarmarka Hafnar en bendir á að í núverandi samþykkt eru stöður húsbíla bannaðar á götum og almenningsbifreiðastæðum, ef þau þykja valda íbúum ónæði.
Kynnt bréf frá Ullu Pedersen og Ragnari Frank Kristjánssyni þar sem óskað er samþykkis bæjarstjórnar á að barn þeirra hefji skólavist í Kirkjubæjarskóla frá næstu áramótum.
Framkvæmdastjóri fræðslu – og félagssviðs lagði fram áætlun um kostnað sem fylgir því að verða við ofangreindri beiðni.
Bæjarráð telur ekki fært að verða við beiðni um að barn Ullu og Ragnars hefji nám á Kirkjubæjarklaustri um næstu áramót vegna mikils viðbótarkostnaðar sem það hefði í för með sér fyrir sveitarfélagið. Í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem hér er um að ræða er bæjarráð tilbúið til að skoða möguleika á því að bjóða barninu að stunda nám í
8. bekk í Grunnskólanum í Hofgarði á vorönn 2005. Framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs er falið að ræða við foreldra barnsins og skólayfirvöld um málið.
Kynnt kostnaðaráætlun vegna mötuneytismála í Hafnar- og Heppuskóla.
Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs fór yfir kostnaðaráætlun vegna málsins. Málið verðu rætt frekar í nefnd um mötuneytismál.
Inga Jóna tilkynnti bæjarráði að hún hafi ákveðið að segja stöðu sinni sem framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs hjá Sveitarfélaginu lausri.
Fundi slitið kl.12:45


