Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
202. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 6. mars 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 40. fundur 26. febrúar 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 47. fundur 25. febrúar 2003.
Ólafur spurði hvenær gert sé ráð fyrir að handmenntastofur í Vöruhúsi verði tilbúnar. Kristín telur hugmynd um „sektargreiðslur“ ef börn eru ítrekað sótt eftir umsaminn vistunartíma áhugaverða. Hún ræddi hversu gott framtak það er að skólanefndarfólk fékk afhenta möppu um ýmis lög , reglugerðir ofl. er lýtur að skólastarfi. Stefán sagði vinnu við handmenntastofur hafa tafist vegna heildarúttektar á húsinu. Fram kom að arkitekt sem vinnur að úttekt hússins verður á Höfn n.k. mánudag og mun málið þá væntanlega skýrast.
Fundargerð samþykkt.
2. Tillaga til þingsályktunar um aðgang landsmanna að GSM-farsímakerfinu 546. mál.
Bæjarráð veitir ekki umsögn um tillöguna.
3. Lóðarumsókn
Tekin var fyrir umsókn Búmanna um að fá úthlutað lóðinni að Víkurbraut 32 fyrir 7 raðhúsaíbúðir. Bæjarráð samþykkir að úthluta Búmönnum lóðina með fyrirvara um endanlega afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar. Bæjarráð telur æskilegt að nýtingarhlutfallið fari ekki undir 0,22.
4. Ósk um styrk
· Bréf Félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga dags. 24. febrúar 2003.
Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdaráðs Heilbrigisstofnunar Suðausturlands
· Reglugerðir um húsaleigubætur ásamt leiðbeiningum – bréf Félagsmálaráðun. 2. mars 2003.
Til kynningar.
· Tilkynning frá SSA um ráðstefnur um málefni sveitarfélaga, dags. 28. febrúar 2003.
Til kynningar.
· Ráðgjafarnefnd vegna undirbúnings að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, afrit af bréfi Umhverfisráðuneytis dags. 25. febrúar 2003.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 11:20


