Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
203. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 13. mars 2003, kl 10:00
Mætt voru: Björn Traustason, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar 22. fundur 5. mars 2003.
Kristín spurði hvenær björgunaræfing við Hornafjarðarhöfn væri fyrirhuguð. Ólafur vakti athygli á hvort huga þurfi að öryggismálum í væntanlegum göngum undir Almannaskarð og hver beri ábyrgð á þeim. Albert sagði að ekki væri komin endaleg dagsetning varðandi æfinguna en starfshópur væri að undirbúa málið. Fundargerð samþykkt.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 6. fundur 5. mars 2003.
Kristín ræddi um 4 lið varðandi lausagöngu stórgripa, hvort að þurfi ekki að sækja harðar á Vegagerðina um að girða vegstæðið. Ólafur ræddi um lausagöngu stórgripa og taldi að banna ætti hana í öllu sveitarfélaginu. Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 48. fundur 4. mars 2003.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 36. fundur 10. mars 2003
Ólafur spurðist fyrir um ráðstefnu um holræsismál og um nýjan ós við Hólmsá. Kristín spurðist fyrir um skiltamál í sveitarfélaginu, hvort ekki þyrfti samræmingu á þeirri vinnu. Albert benti á skýrslu varðandi frárennslismál sem nýlega er komin út og sagði frá ráðstefnunni. Skýrsluna er hægt að nálgast á netinu. Bæjarráð tekur undir ábendingu varðandi lið 2 um að Staðardagskrá 21 fái umfjöllum í nefndum. Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 48. fundur 24. febrúar 2003.
Ólafur spyr um kostnaðaráætlun varðandi íþróttamannvirki. Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði 3. fundur 5. mars 2003.
Ólafur biður menn að hafa fæturna á jörðinni varðandi kostnað. Fundargerð samþykkt.
2. Umræða um sameiginleg hagsmunamál Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps
Albert sagði frá fundi með oddvita Skaftárhrepps um sameiginleg hagsmunamál t.d. Vatnajökulsþjóðgarð, samgöngumál s.s. stytting vegalengda og almenningssamgöngur, samskipti á milli sveitarstjórna og fleiri mál. Fulltrúar sveitarstjórnar Skaftárshrepps stefna að heimsókn 10 eða 11 apríl n.k.
3. Tillaga um varamann í Heilbrigðisnefnd Austurlands
· Bréf HAUST dags. 9, mars 2003.
Bæjarráð samþykkir að Ástríður Baldursdóttir verði varamaður í Heilbrigðisnefnd.
4. Tilboð vegna framkvæmda á íþróttasvæðinu á Höfn
· Bréf Knattspyrnudeildar Sindra dags. 6. mars 2003.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera uppkast að samningi við Sindra og verður hann lagður fyrir bæjaráð á næsta fundi.
5. Ósk um rekstararlán með breytirétti í hlutafé
· Bréf Norðuríss 3.mars sl.
Bæjarráð samþykkir að greiða atkvæði með samþykktarbreytingu á næsta hluthafafundi/aðalfundi skv. bréfi dags. 3/3 sl. Bæjarráð fellur frá forkaupsrétti um rekstrarlán með breytirétti í hlutafé.
6. Tillögur faghóps atvinnurekenda á Höfn um viðbrögð heimamanna við stórframkvæmdum á Austurlandi
Albert fór yfir málið. Bæjarráð telur ástæðu til að vekja athygli á þessum tilmælum og beinir þeim til allra nefnda sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
7. Ósk um styrk vegna landsþings Kvenfélagasambands Íslands
· Bréf Sambands austfirskra kvenna dags. 2003.
Bæjarráð hafnar beiðninni.
8. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf Alcoa á Íslandi dags. 25. febrúar 2003.
· Kynning á átaksverkefnum - bréf Svæðisvinnumiðlunar Austurlands dags. 1. mars 2003.
Bæjarráð vísar málinu til atvinnumálanefndar.
9. Önnur mál
Fundi slitið kl. 12:00


