Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
205. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 26. mars 2003, kl 12:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 46. fundur 19. mars 2003.
Á óformlegum bæjarstjórnarfundi sem fyrirhugaður er 8. april n.k. verður framtíðarnotkun Sindrabæjar rædd.
Bæjarráð telur að lágmarkseldhúsaðstaða í Pakkshúsi muni nægja miðað við fyrirhugaða notkun hússins og leggur áherslu á að kostnaður við framkvæmdina verði lágmarkaður.
Bæjarráð mun taka afstöðu til þáttöku í Íslandsleikhúsi þegar fyrirkomulag Vinnuskólans næsta sumar hefur verið ákveðið.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 48. fundur 19. mars 2003.
Bæjarráð gaf framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs heimild til undirbúnings faglegrar úttektar á leikskólum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
2. 3ja - 10 ára áætlun
Ásta fór yfir breytingar sem gerðar hafa verið milli umræðna. Meginbreytingin er að bætt hefur verið inn 2 milljónum árið 2005 og 2 milljónum árið 2006 vegna framkvæmda við Sindravelli. Nokkrar leiðtéttingar hafa verið gerðar. Bæjarráð felur fjármálastjóra að kanna möguleika á að fráveita Hornafjarðar verði færð í B hluta bæjarsjóðs.
Bæjarráð vísar áætluninni til annarar umræðu í bæjarstjórn.
3. Reglur um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Lögð voru fram drög að reglum um gjaldtöku fyrir notkun á húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.
4. Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar
Bæjarstjóri lagði fram gjaldskrá Hornafjarðarhafnar. A hluti gjaldskrárinnar er ákvarðaður af samgönguráðuneytinu í samræmi við hafnarlög nr. 23/1994. B hluta, þjónustugjöld, tekur Hafnarstjórn Hornafjarðar ákvörðun um.
Bæjarráð staðfestir fram lagða gjaldskrá.
5. Lóðin að Hafnarbraut nr. 38 – áður leigð Skeljungi hf.
· Símafundur með Sveini Sveinssyni hrl. þar sem hann fór yfir stöðu málsins.
Bæjarráð var sammála um að fá niðurstöðu úr fram lagðri aðfararbeiðni áður en frekar verður aðhafst í málinu.
6. Ákvörðun um töku langtímaláns
Sveitarfélagið hefur leitað tilboða vegna lántöku að upphæð 150 milljónir. Þrjú tilboð bárust, frá Landsbanka Íslands, Íslandsbanka og Kaupþingi. Ásta lagði fram minnisblað varðandi málið dags. 26. mars. Bæjarráð samþykkir að taka lán frá Íslandsbanka að upphæð 150 milljónir kr. Lánið er verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs og ber fasta 6,4 % vexti .
Lánstíminn er 10 ár en möguleiki er á uppgreiðslu eftir 5 ár.
7. Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu
· Bréf dags. 17. mars um ráðstöfun stofnfjárframlaga.
Jóhann Moravek skólastjóri Tónskólans mætti á fundinn og kynnti óskir um leigu á hljóðfærum og kaupleigu á flygli fyrir skólann. Um er að ræða ráðstöfun hluta af stofnfjárframlagi skólans næstu 6-8 árin. Bæjarráð mun kynna sér málið frekar.
8. Austfar ehf.
· Bréf dags 19. feb. 2003 þar sem farið er fam á styrk til listskreytinga í Norrönu.
Bæjarráð samþykkir framlag að upphæð kr. 99.192,- sem tekið verður af óráðstöfuðu við endurskoðun á fjárhagsáætlun 2003. Bæjarráð lítur á þetta framlag sem auglýsingu fyrir sveitarfélagið.
9. Innsend erindi og til kynningar
· HAUST – Bréf dags. 14. mars 2003 varðandi sýnatökuáætlun neysluvatns 2003.
Bæjarráð lýsir óánægju vegna sívaxandi og oft óvæntra viðbótarútgjalda við heilbrigðiseftirlitið.
· Samband íslenskra sveitarfélaga – Bréf dags. 12. mars varðandi endurgreiðslu virðisaukaskatts til sveitarfélaga vegna holræsahreinsuna.
Til kynningar.
· Landskerfi bókasafna – fréttir af innleiðingu nýs bókasafnskerfis.
Til kynningar.
10. Önnur mál
Bæjarráð samþykkir að 1,5 milljón verði varið til gerðar forhönnunarskýrslu vegna fyrirhugaðra fráveituframkvæmda og verður það tekið af óráðstöfuðu við endurskoðun á fjárhagsáætlun 2003.
Fundi slitið kl. 14:30


