Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 259
259. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 15. júlí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Einar Karlsson og Björn Traustason . Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H.Guðmundsdóttir og Helgi Már Pálsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Umhverfisnefnd 12. júlí 2004 43. fundur, fundargerð send í tölvupósti
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðis og öldrunarráð 5. júlí 2004 52. fundur
Bæjarstjóri sagði frá því að gengið hefur verið frá ráðningu yfirlæknis á Heilbrigðisstofnunina.
Fundargerð samþykkt.
• Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 21. fundur 5. júlí 2004.
Fundargerð samþykkt.
2. Framlenging á samningi við Menningarmiðstöð Hornafjarðar varðandi Jöklasýningu
Farið var yfir samninginn. Ákveðnum verkefnum sem leggja á áherslu á skv. honum er lokið s.s. langtímaleigusamningi um húsnæði og ráðningu sýningarhönnuðar. Bæjarstjóri greindi þó frá því að eftir er að ljúka ákveðnum formsatriðum varðandi leigusamninga í Vöruhúsi. Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn um 2 mánuði og vísar til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
3. Rekstrarform Nýheima
Bæjarstjóri fór yfir minnisblað frá Sigfúsi Jónssyni hjá Nýsi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
4. Bréf frá Landbúnaðarráðuneytinu dags. 2. júlí vegna Litlasands
Bæjarráð samþykkir að staðið verði við fyrra samkomulag um kaup Sveitarfélagsins á landskikanum með þeim fyrirvara að Hestamannafélagið Hornfirðingur kaupi landið síðan af Sveitarfélagsinu á sama verði.
5. Bréf frá Fjölís dags. 26. febrúar 2004 varðandi samning um fjölföldun verndaðra verka
Fram kom að áætlaður kostnaður vegna samnings við Fjölís er 100 – 150 þús.kr.
Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá samningi við Fjölís og vísar til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
6. Verklegar framkvæmdir
• Fráveita
• Hafnarbraut
Helgi Már fór yfir skýrslu Línuhönnunar um fyrirkomulag fráveitu á vesturströnd Hafnar. Bæjarráð óskar eftir kostnaðarmati á tillögum um staðsetningu á útrásum 3 og 4 í skýrslunni. Í ljósi mats skv. bréfi dags. 22.júní sl.frá Línuhönnun hafnar bæjarráð tilboði Bólholts frá janúar sl. í hreinsibúnað í fráveitukerfi.
Helgi Már fór yfir teikningar með tillögum að frágangi Hafnarbrautar sem Ulla Pedersen landslagsarkitekt hefur unnið. Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að vinna frekari tillögur að frágangi Hafnarbrautar á milli Litlubrúar og Hafnarbrautar 33 sem fara á í framkvæmdir við nú í haust. 7. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá Universitetet i Tromso dags. 20. júní 2004.
Bæjarráð óskar að kannað verði hvort Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri hefur tök á því að fara á fundinn.
Til kynningar.
• Bréf frá Samband íslenskra sveitarfélaga dags. 5. júlí 2004.
Til kynningar.
• Bréf frá Siglingastofnun dags. 7. júlí 2004.
Bæjarráð er sammála því að Siglingastofnun Íslands verði falið að ganga til samninga við dýpkunarverktaka á grundvelli kostnaðaráætlunar um dýpkun á grynnslunum.
• Bréf frá Norðurís dags. 29. júní 2004.
Til kynningar.
• Bréf frá HAUST dags. 7. maí 2004.
Til kynningar.
• Bréf frá Úrvinnslusjóði dags. 30. júní 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til atvinnumálanefndar, umhverfisnefndar og tækni- og umhverfissviðs til umfjöllunar.
8. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 12:00


