Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 258
258. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 1. júlí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir Einar Karlsson . Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H.Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 58. fundur 23. júní 2004.
Rætt var um skiptingu milli viðhaldsliða og stofnframkvæmda, sbr. meðfylgjandi tillöguskjal undirbúningshóps. Halldóra B. fór fram á að þetta skjal verði endurskoðað með tilliti til fram kominna athugasemda.
Fundargerð samþykkt.
2. Vínveitingaleyfisumsóknir
• Umsókn Einars Björns Einarssonar v. veitingahússins við Jökulsárlón dags. 16. apríl 2004.
• Umsókn Bjarna S. Bjarnasonar v. Jöklasels dags. 13. maí 2004.
• Umsókn Sigurbjarnar J. Karlssonar v. Ferðaþjónustunnar Smyrlabjörgum dags. 18. júní 2004.
Bæjarráð samþykkir útgáfu vínveitingaleyfa til ofangreindra aðila.
3. Yfirlit yfir verklegar framkvæmdir
Helgi Már fór yfir yfirlitið, útskýrði einstaka liði þess og stöðu framkvæmda. Bæjarráð leggur áherslu á að leitað verði eftir samvinnu við Vegagerðina þegar malbikunarframkvæmdir hefjast við Almannaskarðsgöngin á næsta ári þannig að unnt verði að nýta þann tækjakost sem hér verður til staðar til framkvæmda á Höfn.
4. Sparkvöllur KSÍ
Bæjarráð samþykkir að sparkvöllur KSÍ verði byggður á næsta ári. Ef félagasamtök eru tilbún að fjármagna hlut Sveitarfélagsins í verkinu á þessu ári með vilyrði um endurgreiðslu á næsta ári heimilar bæjarráð það. Rætt var um hvort æskilegt væri að færa völlinn aðeins til vesturs til að fá betri nýtingu á svæðinu. Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og æskulýðs- og tómstundaráðs til frekari úrvinnslu.
5. Umsókn um launað námsleyfi
• Bréf Gísla Sverris Árnasonar dags. 6. maí 2004.
Beiðni forstöðumanns Menningarmiðstöðvar um níu mánaðar námsleyfi er stefnumarkandi og fordæmisgefandi verði hún samþykkt. Með tilliti til þessa telur bæjarráð mikilvægt að bæjarstjórnarfulltrúar fái góðan tíma til að skoða og ræða málið og telur nauðsynlegt móta almennar reglur varðandi námsleyfi áður en umsóknir eru afgreiddar til lengri tíma. Ekki er heldur gert ráð fyrir þessum útgjöldum á fjárhagsáætlun 2004.
Af þessum ástæðum telur bæjarráð sig ekki geta orðið við ósk forstöðumanns Menningarmiðstöðvar um námsleyfi á þessu ári.
6. Rekstraryfirlit HSSA
Ásta fór yfir rekstraryfirlitið. Staðan eftir 5 mánuði er halli upp á tæpar 4,5 milljónir kr. Fram kom á fundinum að Ásgeir Ásgeirsson hefur verið ráðinn til ráðgjafastarfa við stofnunina.
7. Ósk um styrk
• Bréf Aðalheiðar Borgþórsdóttur f.h.LungA dags. 21. júní 2004.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til ungmenna sem áhuga hafa á að sækja Listahátíð ungs fólks á Austurlandi sem fram fer á Seyðisfirði 12. – 17. júlí n.k. Heildarupphæð styrksins er kr. 25.500. Bæjarráð óskar þess að Menningarmiðstöð hafi forgöngu um að auglýsa eftir áhugasömum þátttakendum.
8. Innsend erindi og til kynningar
• Gögn frá Menningarmálanefnd, bréf Gísla Sverris Árnasonar dags. 24. júní 2004.
Kristín lýsti yfir ánægju með rekstur Menningarmiðstöðvar, hversu vel hann gangi og hversu vel takist að afla fjár frá öðrum en sveitarsjóði til rekstrarins. Var undir það tekið.
• Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga dags.23. júní 2004.
Til kynningar.
• Bréf frá styrktarsjóði EBÍ dags. 24. júní 2004.
Til kynningar.
• Bréf Vegagerðarinnar v. styrkvegasjóðs dags. 25. júní 2004.
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með synjun Vegagerðarinnar á styrk úr styrkvegasjóði vegna lagningu vegar niður á Suðurfjörur. Framkvæmdin er brýn fyrst og fremst m.t.t. til björgunar- og öryggismála.
9. Önnur mál
Stefán kynnti samning um stjórn og nýtingu Mánavalla, merkt Drög 3, dags. 28. júní 2004. Bæjarráð leggur til ákveðnar breytingar á upphafi og niðurlagi samningsins en að allar greinar hans standi óbreyttar.
Næstkomandi sunnudag munu Karl Ómar Jónsson og fjölskylda hans afhenda Menningarmiðstöð Hornafjarðar safn heimilda um Svavar Guðnason listmálara úr einkasafni fjölskyldunnar. Um er að ræða blaðaúrklippur með viðtölum, fréttum, gagnrýni o.fl. er spanna allan feril listamannsins. Einnig sýningarskrár, prentuð kort með myndum Svavars og margt fleira.
Karl Ómar Jónsson og Ólöf Stefánsdóttir kona hans hafa lengi sýnt Hornafirði og íbúum héraðsins mikla ræktarsemi og hafa meðal annars haft milligöngu um listaverkagjafir frú Ástu Eiríksdóttur ekkju Svavars Guðnasonar.
Bæjarráð Hornafjarðar þakkar Karli Ómari og fjölskyldu hans hlýhug og velvild gegnum tíðina og felur bæjarstjóra að koma kveðjum og þakklæti bæjarstjórnar Hornafjarðar á framfæri við þau hjón.
Rætt var um ófremdarástand vegna lausagöngu búfjár við þjóveg 1 og í þéttbýli.
Einnig var rætt um slæma umgengni á lóðum.
Fundi slitið kl.12:15


