Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
206. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 2. april 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Félagsmálaráð Hornafjarðar 90. fundur 25. mars 2003.
Fundargerð samþykkt.
Æskulýðs og tómstundaráð 49. fundur 24. mars 2003.
Bæjarráð fagnar því framtaki sem sýnt er með áformum um ævintýralegt fimleikjanámskeiði í sumar. Stefán sagði frá málþinginu „Þátttaka er lífsstíll“. Haukur mætti á fundinn og ræddi m.a. um unglingahús sem rekin eru vítt og breitt um landið og hugmyndir um slíka starfsemi hér.
Fundargerð samþykkt.
2. Tillaga að samþykkt um notkun og hreinsun rotþróa
· Bréf Haust dags. 24. mars 2003.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs til umsagnar.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga – bréf félagsmálaráðuneytis dags 17. mars 2003.
Til kynningar.
· Tilkynning um úthlutun úr Menningarborgarsjóði – bréf Menningarborgarsjóðs dags. 18. mars 2003.
Til kynningar.
· Úthlutun framlaga til sveitarf. vegna nýbúafræðslu – bréf Félagsmálaráðuneytis dags. 20. mars 2003.
Til kynningar.
· Lífeyrisskuldbindingar sveitarsjóðs - bréf Talnakönnunar dags. 21. mars 2003.
Til kynningar.
· Húslaleigubætur – bréf Félagsmálaráðuneytis dags. 24. mars 2003.
Til kynningar.
· Heimsókn til Sisimiut – bréf dags. 25. mars 2003.
Til kynningar.
· Málefni Norðuríss bréf dags. 24. mars 2003.
Til kynningar.
· Umsóknir um styrki frá Norrænu æskulýðsnefdinni – bréf Menntamálaráðuneytis dags. 25. mars 2003.
Erindinu vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.
· Skýrsla félagsmálaráðherra um framkvæmd verkefnis um reynslusveitarfélög, bréf verkefnisstjórnar dags. 25. mars 2003. Sjá vef ráðuneytisins.
Til kynningar.
· Hlutdeild hafna í veiðigjaldi – bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 26. mars 2003.
Til kynningar.
· Evrópuár fatlaðra 2003 – ráðstefna 5. apríl 2003.
Til kynningar.
4. Önnur mál
Leikskóli í Hofgarði
Bæjarráð samþykkir að leikskóladeild verði starfrækt í Hofgarði til 8. maí vorið 2003.
Ólafur tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Tónskóli Austur –Skaftafellssýslu – beiðni um ráðstöfun stofnfjárframlaga
Bæjarráð samþykkir að heimila skólastjóra Tónskólans, í samráði við fjármálastjóra, að ráðstafa allt að kr. 300.000 af árlegu stofnfjárframlagi skólans næstu 6-8 árin til leigu á hljóðfærum og kaupleigu eða kaupa á flygli. Þessi ráðstöfun má þó ekki leiða til þess að stofnfjárframlög skólans aukist frá því sem nú er.
Fundi slitið kl. 11:05


