Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
208. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 23. april 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd 43. fundur 9. april 2003.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálaráð 91. fundur 15. april 2003.
Fundargerð samþykkt.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 45. fundur 7. april 2003.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðis- og öldrunarráð 41. fundur 9. april 2003.
Fundargerð samþykkt.
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 49. fundur 11. apri l2003.
Fundargerð samþykkt.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 47. fundur 2003.
Elín spurðist fyrir um samninga varðandi Pakkhúsið. Kaffihornið mun leigja húsið einhver kvöld í sumar og greiða leigu skv. nýsamþykktri gjaldskrá. Bæjarráð ítrekar að gæta þurfi þess að skekkja ekki samkeppnisaðstöðu rekstraraðila í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
2. Haust
Bréf dags. 8. april s.l. varðandi viðbót við gjaldskrá HAUST
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við viðbótargjaldskrána.
3. Opnun tilboða í gatnagerð á Hafnarbraut og Fákaleiru
Í gatnagerð á Hafnarbraut bárust 2 tilboð frá eftirtöldum aðilum :
Rósaberg ehf. kr. 21.011.750 sem er 89,07% af kostnaðaráætlun.
Jarðverk ehf. kr. 29.715.000, 125,97% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rósabergs ehf.
Í gatnagerð á Fákaleiru bárust 3 tilboð frá eftirtöldum aðilum :
Rósaberg ehf. kr. 5.297.900 eða 93,06% af kostnaðaráætlun.
Jarðverk ehf. kr. 6.617.500 sem er 116,24% af kostnaðaráætlun.
Blómaland ehf. kr.5.693.415, 100,01% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rósabergs ehf.
Bæjarráð leggur áherslu á að tímaáætlanir varðandi verklok við Hafnarbraut haldi.
4. Innsend erindi og til kynningar
Kvennahlaup ÍSÍ – beiðni um styrk til undirbúnings Kvennahlaupsdagsins.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni.
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur – nemendur tónlistarskóla í Reykjavík með lögheimili í öðrum sveitarfélögum.
Til kynningar.
Menningarráð – tilkynning um styrk til Jöklasýningar v. kaupa á líkani af Vatnajökli.
Til kynningar.
Samkomulag um stofnun og rekstur Frumkvöðlaseturs Austurlands.
Til kynningar.
Íslenska vitafélagið – tilkynning um stofnfund félagsins.
Til kynningar.
HAUST – bréf Helgu Hreinsdóttur v. bókunar á 205. fundi bæjarráðs.
Til kynningar.
Umhverfisráðuneytið – tilkynning um skipan Hreindýraráðs.
Til kynningar.
Vegagerðin – undirbúningsvinna vegna jarðgangna undir Almannaskarð.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Beiðni um samþykki bæjarstjórnar á aðilaskiptum á
jörðinni Borgarhöfn 5 – Gamla Garði.
Bæjarráð samþykkir aðilaskiptin.
Beiðni um samþykki bæjarstjórnar á aðilaskiptum á landspildu ca. 200 hektarar úr jörðinni Krossbæ.
Bæjarráð samþykkir aðilaskiptin. og afsalar sér forkaupsrétti á landspildunni með fyrirvara um samþykki jarðanefndar.
Veðflutningur á lánum af Jónu Eðvalds SF 20 yfir á Jónu Eðvalds SF 200
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til að ganga frá ofangreindum veðflutningi.
Stefán kynnti lokateikningar af smíðastofu í Vöruhúsi og tilboð til KASK um leigu. Stefnt er að því að húsnæðið verði tilbúið í ágúst takist samningar við eigendur hússins.
Stefán ræddi gjaldskrá vegna lengdrar viðveru sem hefst í haust.
Nokkur umræða var um rekstur á gæsluvelli. Samþykkt var að rekstur gæsluvallar verði með sama hætti í sumar og undanfarin ár.
Fundi slitið kl. 11:58


