Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
210. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 8. maí 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 7. fundur 5. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Æskulýðs og tómstundarráð Hornafjarðar 50. fundur 5. maí 2003.
Fundargerð samþykkt.
Starfshópur um stofnun Jöklseturs á Hornafirði 6. fundur 29. apríl 2003.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðisnefnd Austurlands 35. fundur 8. apríl 2003 ásamt fylgigögnum - til kynningar.
2. Ljósmyndasafn Jóhönnu V. Arnbjörnsdóttur
Erindi Gísla Sverris Árnasonar forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar dags. 5. maí 2003.
Ákvörðun um erindið frestað.
3. Vinnuskólinn sumarið 2003
Lagt var fram minnisblað frá Vali Sveinssyni um málið. Tillaga um fyrirkomulag Vinnuskólans sumarið 2003 verður lögð fram á næsta bæjarráðsfundi.
4. Innsend erindi og til kynningar
Aðgangur að Friðsæld – bréf Hanní Heiler dags. 20. apríl 2003.
Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og framkvæmdastjóra sveitarfélagsins.
Ályktun aðalfundar Landgræðslufélags Öræfinga 2. apríl 2003.
Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í bréfinu og lýsir áhyggjum af landbroti í sveitarfélaginu.
Bréf Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu dags. 28. apríl 2003.
Til kynningar.
Bréf Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu dags. 28. apríl 2003.
Bæjarráð fagnar því að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu vilja bindast samtökum um að vinna að framgangi greinarinnar á Suðausturlandi.
Málþing um Þórberg Þórðarson 29. – 30. maí 2003.
Til kynningar.
Bréf Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga dags. 30. apríl 2003.
Til kynningar.
5. Önnur mál
· Umsóknir um niðurfellingu fasteignaskatts 2003
Bæjarráð hafnar beiðnunum og felur fjármálastjóra að svara erindunum með viðhlítandi skýringum.
Rætt var almennt um reglur varðandi niðurfellingar fasteignaskatts. Bæjarráð telur eðlilegt að reglur um niðurfellingu fasteignaskatts verði endurskoðaðar samhliða fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2004.
Bæjarráð hvetur fasteignaeigendur sem telja eignir sínar rangt metnar að senda inn kæru þess efnis til Fasteignamats ríkisins.
· Rekstraryfirlit árið 2002
Fjármálastjóri lagði fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir A og B hluta sveitarfélagsins ásamt ársreikningi Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir árið 2002.
· Umsókn um bráðabyrgðaleyfi til að staðsetja 6 smáhýsi á tjaldsvæðinu við Hrossabithaga.
Halldóra vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir bráðabirgðaleyfi fyrir framkvæmdinni og vísar málinu til byggingar- og skipulagsnefndar til frekari vinnslu.
· Bæjarstjóri tilkynnti að tekist hafi að leysa ágreining um túlkun þjónustusamnings um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu milli sveitarfélagsins og ríkisins.
Bæjarráð fagnar þessari niðurstöðu.
Kristín spurðist fyrir um tilmæli frá byggingafulltrúa um tiltekt á einstaka lóðum í sveitarfélaginu, en árangur virðist takmarkaður. Bæjarráð beinir því til byggingarfulltrúa að hann ítreki tilmælin ella verði nýjum viðurlögum Heilbrigðiseftirlits Austurlands beitt í málinu.
Fundi slitið kl. 11:30


