Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 257
257. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 24. júní 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir Einar Karlsson . Áheyrnarfulltrúi var Kristín Gestsdóttir.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 26. fundur 16. júní 2004
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar, 61. fundur 14. júní 2004
Rætt var um tillögu skólanefndar varðandi mötuneytismál. Bæjarráð telur að kostnaður þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin, s.s raunkostaður við mötuneyti Nesjaskóla og leikskóla, stofnkostnaður og rekstur mv. mismunandi leiðir og vísar málinu aftur til framkvæmdarstjóra og nefndar um mötuneytismál.
Rætt var um leikskólaskýrsluna og er hún að mörgu leyti mjög jákvæð fyrir leikskólastarfið að mati bæjarráðsmanna. Rætt var um að auka þurfi samstarf milli skólanna eins og fram kemur í skýrslunni.
Fundargerð samþykkt
2. Málefni Hafnarskóla
• Samanburður Stefáns Ólafssonar á launakostnaði og tillaga um fyrirkomulag sérstaks stuðnings í Hafnarskóla 2004 – 2005.
Farið var yfir útsend gögn. Bæjarráð samþykkir fram komna tillögu um tvo aðstoðarkennara og einn stuðningsfulltrúa skólaárið 2004 – 2005. Að því skólaári loknu verði árangur þessa starfs metinn. Málinu er vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
3. Vínveitingaleyfisumsóknir
• Umsókn Gests Halldórssonar f.h. Humarhátíðarnefndar, dags. 10. júní 2004
Bæjarráð samþykkir umsóknina .
• Umsókn Karlakórsins Jökuls, undirrituð af Heimi Heiðarssyni, dags. 15. júní 2004
Bæjarráð samþykkir umsóknina með sömu skilyrðum og Humarhátíðarnefnd þarf að hlíta.
4. Málefni Vinnuskóla
Rætt var um stöðu vinnuskólans og útreikningur lagður fram til kynningar.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með störf vinnuskólans á þessu vori.
5. Innsend erindi til kynningar
• Aðalfundarboð Þróunarfélags Austurlands, ódagsett bréf Jóns Einars Marteinssonar.
Bæjarráð samþykkir að Elín Magnúsdóttir verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
• Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 15. júní 2004, um sölu fasteigna sveitarfélaga
Til kynningar
• Móttaka Sambands íslenskra sveitarfélaga í nýju skrifstofuhúsnæði 25. júní 2004.
Til kynningar.
6. Önnur mál
• Samningar vegna skólaaksturs við dreifbýlisskólana. Bæjarráð felur framkvstj. fræðslu- og félagssviðs að ganga frá samningum við skólabílstjóra til eins árs á grundvelli eldri samninga sem nú eru að fallnir úr gildi.
• Greint frá fundi þann 22. 06. um málefni Mánavallar þar sem mættir voru tveir fulltrúar frá Umf. Mána og tveir frá sveitarfélaginu. Jafnframt kynnt bréf, dags. 22. júní 2004, undirritað af formanni Umf. Mána, Hjalta Egilssyni. Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastj. fræðslu- og félagssviðs að ganga til samninga við Umf. Mána um stjórn og nýtingu vallarins.
• Kynntar tvær umsóknir um námsvist utan lögheimilssveitarfélags. Umsóknir þessar byggja á samkomulagi um skólagöngu viðkomandi. Bæjarráð samþykkir umsóknirnar.
• Kynnt drög að samningi frá KSÍ vegna samstarfs þess og sveitarfélagsins við fyrirhugaða uppbyggingu sparkvallar með gervigrasi.
• Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun:
Í framhaldi af fundi bæjarráðs Hornafjarðar þann 23. júní með fulltrúum menntamálaráðuneytisins, þeim Guðmundi Árnasyni, Örlygi Geirssyni og Hermanni Jóhannessyni, fer bæjarráð Hornafjarðar fram á að við lokauppgjör á byggingakostnaði Nýheima (Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu) verði notuð svokölluð 5% viðbót við normkostnað eins og gildir með samninga í dag. Bæjarráð lítur svo á að vegna breyttra reglna á samnings- og framkvæmdatíma og meðan lokauppgjör vegna byggingarinnar hefur ekki farið fram sé ekki um afturvirkni áður nefndrar 5% viðbótar að ræða heldur aðlögun að breyttu umhverfi og sanngirnismál.
Jafnframt óskar bæjarráð Hornafjarðar eftir endurskoðun á samningi um kaup Hornafjarðar á eignarhluta FAS í Nesjaskóla samkvæmt rammasamningi dagsettum 9. mars 2000 og samkomulagi, dagsettu 14. október 1999.
Bæjarráð samþykkir bókunina.
Fundi slitið kl. 11:50


