Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs
212. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 15. maí 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Valur Sveinsson (undir 1. lið á dagskrá), Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Vinnuskólinn sumarið 2003
Bæjarráð samþykkir að rekstur vinnuskóla verði í samræmi við fram lagða tillögu tæknideildar.
2. Samningar um skólaakstur
Bæjarráð samþykkir að framlengja um tvö ár samning um skólaakstur sem gerður var á grundvelli útboðs 1998 og felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að ganga frá samningi á grundvelli tilboðs dags. 30. 4. 2003.
3. Óskir um umsagnir á útgáfu gisti- og veitingaleyfa
· Flugleiðahótel hf. vegna Hótel Edda Nesjaskóla.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu gisti- og veitingaleyfis til Flugleiðahótela hf. vegna Hótel Eddu, Nesjaskóla.
· Bjarni Skarphéðinn Bjarnason vegna Jöklasel.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu gisti- og veitingaleyfis til Bjarna Skarphéðins Bjarnasonar vegna Jöklasels.
· Björn Þorbergsson vegna gistingar og reksturs veitingastofu á einkaheimili í Gerði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu gisti- og veitingaleyfis til Björns Þorbergssonar vegna Gerðis.
· Björn Þorbergsson vegna Hrollaugsstaða.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu gisti- og veitingaleyfis til Björns Þorbergssonar vegna Hrollaugsstaða.
4. Innsend erindi og til kynningar
· Bréf aðalfundar Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga dags. 30. apríl sl. v. atvinnumála.
Rætt var um erindið og var framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs falið að svara því.
· Bréf aðalfundar Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga dags. 30. apríl sl. v. landbrots í Austur-Skaftafellssýslu.
Bæjarráð tekur undir ábendingar og varnaðarorð Búnaðarsambandsins vegna landbrots í Austur – Skaftafellssýslu.
Fram kom að bæjarstjóri og bæjarfulltrúar hafa rætt alvarlegar afleiðingar landbrots í sýslunni við fjölmarga aðila m.a. fulltrúa fjárlaganefndar, ráðherra, þingmenn, fulltrúa Vegagerðar og Landgræðslu sem vann framkvæmdar- og kostnaðaráætlun til að bæta skaða er varð í náttúruhamförum haustið 2002.
Bæjarráð hvetur til þess að fjármagni verði tafarlaust úthlutað til þeirra brýnu aðgerða sem skýrsla Landgræðslunnar sýnir að þörf er á.
Framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs falið að svara erindinu.
· Bréf UST dags. 28. apríl sl. – viðmiðunartaxti og verðlaun fyrir unna minka 2003.
Í bréfi frá Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar dags. 25. april sl. kemur fram að við afgreiðslu fjárlaga hafi verið samþykkt að verja 19,5 milljónum til endurgreiðslu vegna refa- og minkaveiða. Áætlanir UST gerir hins vegar ráð fyrir að miðað við 50% endurgreiðsluhlutfall að hámarki muni upphæðin trúlega nema um 30 milljónum.
Bæjarráð er sammála Umhverfisstofnun um mikilvægi þess að nægilegu fjármagni verði varið til endurgreiðslunnar til þess að unnt verði að vinna með skipulegum hætti að fækkun og helst útrýmingu minks og halda ref niðri á völdum stöðum.
· Bréf Sóknarnefndar Hafnarsóknar dags. 5. maí sl. um aðalskipulag.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs með tilmælum um að erindið verði skoðað við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins sem unnið er að nú.
· Bréf Vinnumálastofnunar dags. 6.maí sl.- úthlutanir styrkja.
Til kynningar. Svar Vinnumálatofnunar hefur verið kynnt forsvarsmönnum Vökuls og jafnframt að fundað verði með þeim innan skamms. Í þessu sambandi var rætt um atvinnuleysisskráningu og í hvers höndum hún skuli vera. Framkvstj. stjórnsýslusviðs falið að leita upplýsinga um skráninguna.
· Bréf Foss dags. 7. maí sl. um viðbótarlífeyrissparnað.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Engin upp borin.


