Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 253
253. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 27. maí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir og Reynir Arnarson. Áheyrnarfulltrúi var Þorbjörg Arnórsdóttir.
Einnig: Ásta H.Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 57. fundur 18. maí 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar 60. fundur 18. maí 2004.
Vegna 3. liðar á dagskrá skólanefndar, „tillögur um breytingar á tímasetningu skólaaksturs...” Bæjarráð leggur áherslu á að skólaakstur verði með sem hagkvæmustum hætti. Um leið er lagt til að við ákvörðun um skólabyrjun að morgni verði gætt hagsmuna þeirra sem lengst þurfa að ferðast með skólabílum.
Vegna 4. liðar á dagskrá skólanefndar, „ósk um að 13 ára börn verði áfram í Grunnskólanum í Hofgarði ....” Þorbjörg telur að skoða eigi nánar framtíðaskipan skólamála í Öræfum og halda fund með forráðamönnum skólaskrifstofu, skólanefndar og íbúum Öræfa og starfsmönnum skólans og fresta ákvörðun. Stefán upplýsti að talað hafi verið við foreldra barna sem eiga að fara í Heppuskóla í haust og þar kom fram að vilji foreldra er ekki samhljóma. Elín upplýsti að búið sé að ákveða málþing um stöðu skólanna í haust , tekur bæjarráð undir að haldnir verði hverfafundir í tengslum við það. Ragnheiður sérkennslufulltrúi mætti á fundinn.
Bæjarráð telur ekki unnt að verða við þeirri beiðni að hafin verði kennsla í 8. bekk í Grunnskólanum í Hofgarði á næsta skólaári, sbr. óskir sem fram koma í bréfi foreldra eins barns í Öræfum og var til umfjöllunar í skólanefnd 18. maí sl.
Vegna 5. liðar á dagskrá skólanefndar, „beiðni um að ráða aðstoðarkennara ...”
Bæjarráð getur ekki tekið undir afgreiðslu skólanefndar um að heimilað verði að ráða þrjá aðstoðarkennara í stað stuðningsfulltrúa í Hafnarskóla. Starfsmönnum fræðslu- og félagssviðs er falið að meta þörf fyrir aukna aðstoð við nemendur Hafnarskóla og koma með tillögur um viðbrögð við þeim vanda sem þar er. Þorbjörg lýsir stuðningi á því að breyta stuðningsfulltrúa í aðstoðarkennara en telur að taka eigi það hugsanlega í skrefum. Ragnheiður vék af fundi.
Vegna 6. liðar á dagskrá skólanefndar, „Erindi Lýðheilsustöðvar – bætt mataræði, aukin hreyfing barna og unglinga”
Bæjarráð hvetur starfsmenn leikskóla, gunnskóla, Heilbrigðisstofnunar og æskulýðs- og tómstundráðs til samstarfs um þessi mál og felur framkvstj. fræðslu- og félagssviðs að kalla saman fulltrúa viðeigandi stofnana.
Bæjarráð heimilar að boðið verði upp á lengda viðveru í Hafnarskóla fyrir nemendur í 1. – 4. bekk næsta skólaár. Gjaldskrá verði sú sama og í ár að viðbættum almennum verðlagshækkunum.
Fundargerð samþykkt.
• Þjónustuhópur aldraðra 13. fundur 23. apríl 2004.
Þorbjörg ókar eftir nákvæmum upplýsingum um gjaldskrá heimilishjálpar og heildarupplýsingar um hana.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn um rekstrarleyfi
• Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 10. maí 2004 vegna gistiheimilis að Ránarslóð 3. Reynir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
• Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 10. maí 2004 vegna Veitingahússins Víkin.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við rekstrarleyfin.
3. Lóðarumsókn
• Bréf Brettasmiðjunnar O. R. ehf. dags. 21. maí 2004.
Bæjarráð teljum ekki fært að úthluta lóðinni en felur bæjarstjóra og framkvæmdarstjóra tæknisviðs að ræða við umsækjandann um aðrar lausnir.
4. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða
• Bréf sjávarútvegsnefndar Alþingis dags. 18.maí 2004.
Bæjarráð veitir ekki umsögn.
5. Málefni Norðuríss hf.
• Bréf framkvæmdastjóra Norðuríss. hf. dags. 20. maí 2004.
Til kynningar. Bæjarráð telur mikilvægt fyrir sveitarfélagið að starfsemi félagsins verði áfram hér á Höfn og er jákvætt að liðsinna eins og kostur er.
6. Innsend erindi og til kynningar
• Ályktanir 67. íþróttaþings ÍSÍ dags. 5. maí 2004.
Til kynningar. Vísað til Æskulýðs og tómstundaráðs.
• Félagsmálaráðuneytið bréf dags. 8. maí v. húsaleigubóta.
Til kynningar.
• Samkeppnisstofnun, bréf dags. 18. maí, vegna léns sveitarfélagsins.
Framkvæmdastjóra stjórnsýslusvið er falið að fylgja málinu eftir.
• HAUST, tölvubréf sent 21. maí 2004 vegna starfsleyfa fyrir gististaði.
Til kynningar.
7. Önnur mál
• Skýrsla lögreglunnar á Höfn um úrbætur til að stuðla að auknu öryggi í umferðinni lögð fram til kynningar. Bæjarráð þakka fyrir góða skýrslu og vísar henni til byggingar og skipulagsnefndar. Þorbjörg leggur til að hugað verði eins fljótt og auðið er að lokið verði við umferðamerkingum við Hafnarbraut.
• Málefni vinnuskólans . Inga Jóna upplýsti að fleiri unglingar hafa sótt um en gert er ráð fyrir í fyrstu áætlun . Bæjarráð sammála að draga ekki úr þeim vinnutíma sem búið er að skipuleggja og endurskoða fjárveitingu í samræmi við það. Bæjarráð ræddi einnig um námskeið fyrir flokkstjóra og mikilvægt sé að halda vel utan um þessa vinnu.
• Rætt var um mikilvægi þess að finna svæði fyrir Motocross og bæjarráð fór í vettvangsferð til að skoða svæði.
Fundi slitið kl. 12:45


