Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 252
252. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 19. maí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir og Friðrik Ingvaldsson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 56. fundur 12. maí 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 50. fundur 12. maí 2004.
Fyrirhugaður er fundur með heilbrigðis- og öldrunarráði og bæjarstjórn n.k. þriðjudag kl. 17 í fundarsal ráðhúss til að ræða stöðu stofnunarinnar.
Fundargerð samþykkt.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 58. fundur 13. maí 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 57. fundur 12. maí 2004.
Vegna athugasemda varðandi viðhaldkostnað á Mánagarði og Sindrabæ er bæjarráð sammála um að ekki verði varið fjármunum til viðhalds þessara húsa umfram það sem gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins.
Fundargerð samþykkt.
• Haust 47. fundur 12. maí 2004 til kynningar.
Fram kemur í 5. lið fundargerðarinnar að þann 8. mars sl. tók gildi hér Samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss. Bæjarráð beinir því til tækni- og umhverfissviðs að samþykktinni verði fylgt eftir.
• Fundargerð aðalfundar Menningarráðs Austurlands 4. maí 2004 til kynningar.
2. Tilboð í Krosseyjarbakka
5 tilboð, bárust í verkið Hornafjörður – Krosseyjarbakki, stálþil. Lægsta tilboðið er frá Ísar ehf. að upphæð kr. 30.952.000 (63,9% af kostnaðaráætlun). Bæjarráð felur Siglingarstofnun að ganga til samninga um framkvæmd verksins í samráði við hafnarstjórn.
3. Úthlutun úr Lánasjóði sveitarfélaga
Tekið var fyrir bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 12. maí sl. þar sem fram kemur að samþykkt hafi verið að veita sveitarfélaginu lán af eigin ráðstöfunarfé sjóðsins að fjárhæð 32 m.kr. vegna skuldbreytinga. Lánið er í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum nú 4,5%, bundið vísitölu neysluverðs og til allt að 15 ára með gjalddaga einu sinni á ári. Einnig var samþykkt að veita sveitarfélaginu 8 m.kr. af endurlánafé sjóðsins. Lánið er í íslenskum krónum, með föstum vöxtum 4,23% á ári, bundið vísitölu neysluverðs, til 15 ára með einum gjálddaga afborgana og vaxta á ári.
„Bæjarráð samþykkir að taka ofangreind lán frá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að upphæð 40 milljónir. Trygging er veitt í tekjum sveitarfélagsins vegna lántökunnar, sbr. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og 13. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 35/1966.
Fjármálastjóri lagði fram yfirlit yfir langtímalán sveitarfélagsins.
4. Innsend erindi og til kynningar
• Umhverfisráðgjöf Íslands bréf dags. 12. maí 2004 um Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.
Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og umhverfisnefndar.
• Slysavarnadeildin Framtíðin - þakkir.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Tilnefningar í undirbúningshóp v. stofnunar Náttúrustofu Suðausturlands.
Eftirtaldir aðilar voru tilnefndir: Halldóra B.Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson, Rannveig Ólafsdóttir frá Háskólasetrinu á Hornafirði og Inga Jónsdóttir tilnefnd af menningarmálanefnd. Samþykkt var að Halldóra verði formaður nefndarinnar.
Humarhátíð – Pakkhús
Bæjarráð er sammála um að Humarhátíðarnefnd fái Pakkhúsið til afnota á hátíðinni samkvæmt áður gerðum samningi.
Kynnt var bréf, frá undirbúningshópi um stofnun Fuglaathugunarstöðvar á Höfn en stofnfundurinn verður haldinn í fundarsalnum í Nýheimum í dag 19. maí kl. 17:00.
Æskulýðs og tómstundafulltrúi lagði fram ósk um að fá heimild til að hækka leigugjald í íþróttahúsinu á Höfn á Sjómannadagshófi úr kr. 150.000 í kr. 180.000 en það er til samræmis við hækkun á leigugjaldi húsnæðisins v. þorrablóta.
Bæjarráð heimilar hækkunina.
Eyjólfur spurði hvort umsókn um gerð sparkvallar hafi fengið jákvæða afgreiðslu hjá KSÍ.
Bæjarstjóri upplýsti að svo hafi verið og málið sé nú í vinnslu.
Halldóra lagði fram minnisblað um fjölda kjördeilda í sveitarfélaginu og hugsanlegar breytingar þar á.
Halldóra spurði um upplýsingaskilti við Lónsafleggjara.
Upplýst var að Vegagerðinn muni koma skiltinu fyrir á nýjan leik.
Friðrik spurði um samning við Djúpavogshrepp v. sorpurðunar og telur eðlilegt að hann verði endurskoðaður.
Fundi slitið kl.11:45


