Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 194
194. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 19. desember 2002, kl 15:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Ólafur Sigurðsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 84. fundur 10. desember 2002.
Fundargerð samþykkt.
- Menningarmálanefnd Hornafjarðar 40. fundur 11. desember 2002.
Fundargerð samþykkt.
- Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar 46. fundur 16. desember 2002.
Fundargerð samþykkt.
2. Stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum á Hornafirði
Lögð voru fram drög að stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum. Stefán fór yfir drögin. Bæjarráð þakkar æskulýðs- og tómstundaráði fyrir vel unnin störf. Bæjarráð felur forstöðumanni fræðslu- og félagssviðs að koma athugasemdum bæjarráðs inn í drög að stefnumótuninni og kynna þær fyrir æskulýðs- og tómstundaráði.
3. Skipan í vinnuhóp vegna Jöklaseturs
Bæjarstjóri leggur til eftirfarandi skipan hópsins:
Hermann Hansson, Inga Jónsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Starfsmaður nefndarinnar verði forstöðumaður Menningarmiðstöðvar og tengiliður á bæjarskrifstofu Inga Jóna Halldórsdóttir.
4. Umsögn um aðilaskipti á Rauðabergi 2/lóð 1
Bæjarráð samþykkir aðilaskiptin og afsalar sér forkaupsrétti á landinu með fyrirvara um samþykki jarðanefndar.
5. Þjónustusamningur Menningarmiðstöðvar og FAS
- Bréf Gísla Sv. Árnasonar forstöðum. Menningarmiðst. Hornafjarðar dags. 10. desember 2002.
Bæjarráð óskar eftir fundi með Skólameistara og skólanefnd til að fara yfir málefni stofnunarinnar.
6. Erindi foreldrafélaga Lönguhóla og Krakkakots
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun:
?Vegna mótmæla Verkalýðsfélagsins Vökuls og foreldra barna í leikskólum Hornfjarðar á hækkun leikskólagjald vill bæjarráð taka fram neðangreindar staðreyndir um þróun á þjónustu og rekstri leikskólanna í sveitarfélaginu. Miðað er við tímabilið 2000 til 2002.
Bæjarstjórn hefur á þessu tímabili sett í forgang og lagt áherslu á að auka og bæta þjónustu við foreldra og börn á leikskólaaldri m.a. með auknu framboði á plássum (Krakkakot), inntöku yngri barna og lengri viðveru fyrir einstaklinga.
Útgjöld sveitarfélagsins (gjöld að frádregnum tekjum) hafa aukist úr 25 milljónum árið 2000 í 55,5 milljónir árið 2003 skv. áætlun, eða um 122% á tímabilinu.
Hluti leikskólagjalda í rekstrinum var um 40% árið 2000 en verður um 30% árið 2003, þrátt fyrir fyrirhugaða hækkun. Bæjarráð telur að þessi hlutföll megi ekki vera ójafnari en orðið er.
Á árunum 2000-2002 hafa almenn leikskólagjöld hækkað um 13 prósentustig. Á sama tíma hefur launavísitala hækkað um 22% og neysluvísitala 14,6%.
Í samanburði við þjónustu og reksturs annara sveitarfélaga eru leikskólagjöld á Hornafirði með þeim lægstu.
Bæjaryfirvöld hafa reynt að halda þjónustugjöldum innan eðlilegra marka og stórbætt þjónustu við fjölskyldur með börn á leikskólaaldri.?
7. Rekstrarform Nýheima ? Sigfús Jónsson frá Nýsi
Sigfús Jónsson mætti á fundinn og fór yfir tillögur að skiptingu eignarhalds og rekstur Nýheima.
8. Innsend erindi og til kynningar
- Starfsleyfi fyrir meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu ? bréf Hollustuv rík. dags. 10. des. 2002.
Til kynningar.
- Niðurstaða fulltrúa Sambands ísl. sveitarfél. um daggjöld hjúkrunarheimila - bréf Samb. ísl. sveitarfélaga dags. 21. nóv. 2002.
Til kynningar.
- Evrópsk umhverfisverðlaun sveitarfélaga - bréf Samb. ísl. sveitarf. dags. 10. des. 2002.
Til kynningar.
- Málefni LTU - bréf Ferðaskrifstofu Austurlands dags. 6. des. 2002.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið 2003 með því að ábyrgjast greiðslu fyrir allt að 10 flugsætum.
- Menningarráð Austurlands ? bréf dags. 9. des. 2002.
Bæjarráð þiggur með þökkum kynningu á starfsemi Menningarráðs Austurlands.
- Upplýsingaskilti við Lónafleggjarann ? bréf eigenda dags. 8. des. 2002.
Bæjarstjóra er falið að leita samninga um málið.
- Frumvarp að breytingu á lögum um húsaleigubætur.
Til kynningar.
- Um gildistöku nýrrar reglugerðar um búsetu fatlaðra ? bréf Félagsmálaráðun. 11. des. 2002.
Til kynningar.
- Varðandi greiðslu húsaleigubóta til fatlaðra íbúa á sambýlum ? bréf Félagsmálaráðun. 11. des. 2002.
Til kynningar.
- Varðar aðstöðu aldraðra í íþróttahúsum ? bréf UMFÍ 10. desember 2002.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti bréf frá dómsmálaráðuneytinu varðandi löggæslu í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að þiggja formlega heimboð frá grænlenska bænum Sisimiut.
Ásta greindi frá viðbótarframlögum frá Jöfnunarsjóði.
Helgi sagði frá fyrirhuguðum kaupum á slökkvibíl (tankbíl) í Öræfin. Bæjarráð samþykkir fyrirhuguð kaup.
Fundi slitið kl. 18:40


