Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 251
251. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 12. maí 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Friðrik Þór Sigvaldsson, Reynir Arnarson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H.Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 110. fundur 4. maí 2004.
Fundargerð samþykkt.
2. Varnargarðar við Hólmsá
Lagt var fram bréf frá Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra, dags. 11. maí sl. þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um gerð varnargarða austan við Hólmsá á Mýrum neðan þjóðvegar nr.1. Lausleg kostnaðaráætlun nemur um 6 millj. kr. og farið er fram á að sveitarfélagið kosti helming verksins.
Halldóra fagnaði því að komin er fram tillaga um lausn á landvörnum við Hólmsá og aðgengi niður á suðurfjörur og telur brýnt að verkið verði unnið sem fyrst. Friðrik vakti athygli á hugsanlegu foki á því landsvæði sem þarna mun myndast.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum þ.e. að passað verði upp á að öllum lögformlegum ferlum vegna verksins verði gætt.
3. Hreindýramál í Austur - Skaftafellssýslu
• Bréf Umhverfisstofnunar dags. 7. maí 2004.
Á fundinum var lagt fram afrit bréfs, dags. 10. maí sl. sem Búnaðarfélagi Hofshrepps sendi landbúnaðar- og umhverfisráðherra. Þar er lýst áhyggjum af fjölda hreindýra í Suðursveit og óskað heimildar til að fella þau dýr sem kunna að fara vestur yfir Jökulsá svo þau ógni ekki heilbrigði búfjár á svæðinu.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur Búnaðarfélags Hofshrepps og telur ástand þessara mála óviðunandi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við landbúnaðarráðuneytið sem ber alla ábyrgð á því ástandi sem upp er komið.
4. Búmannaíbúðir á Höfn
Forsvarsmenn Búmanna Guðrún Jónsdóttir, Þorgrímur Stefánsson og Daníel Hafsteinsson mættu á fundinn. Búmenn fara þess á leit við sveitarfélagið að það hlaupi undir bagga og kaupi búseturéttinn á íbúð að Víkurbraut 32c. Forsenda fyrir því að Búmenn geti haldið uppbyggingu áfram á lóðinni er að ekki séu óseldar íbúðir í fyrsta áfanga.
Bæjarráð tekur afstöðu til málsins síðar.
5. Innsend erindi og til kynningar
• Menntamálaráðuneytið bréf dags. 4. maí 2004 um greiðslu framlags til Jöklaseturs á Hornafirði
Til kynningar.
• Kvenfélagið Vaka í Nesjum, bréf þar sem lýst er andstöðu við þá ákvörðun bæjarstjórnar að leggja niður starfsemi Óla priks.
Bæjarráð telur engar forsendur sem lagðar voru til grundvallar ákvörðun um lokun Óla priks hafa breyst og stendur því við fyrri ákvörðun í málinu.
• Tölvupóstur, dags. 4. maí 2004 frá vinarbænum Kungälv í Svíþjóð.
Til kynningar.
• Lýðheilsustöð, bréf dags. 5. maí 2004 um bætt mataræði – aukna hreyfingu barna og unglinga.
Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar, æskulýðs- og tómstundaráðs og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands.
• Skákfélagið Hrókurinn, bréf um skák – maraþon og söfnun áheita.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.
• Vinnueftirlitið, bréf dags. 29. apríl 2004 um áhættumat vegna vinnu barna og unglinga.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs og æskulýðs- og tómstundaráðs.
• ÁTVR, bréf dags. 6. maí 2004 v. áformaðs flutnings á vínbúðinni Víkurbraut 2
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs og byggingar og skipulagsnefndar til afgreiðslu.
• Síminn, bréf dags. 7. maí 2004 v. fyrirspurnar um farsímaþjónustu og gagnaflutning innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps.
Til kynningar.
• Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 4. maí 2004 um gerð jafnréttisáætlana í fyrirtækjum og stofnunum.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálaráðs sem fer skv. erindisbréfi með umsjón jafnréttismála.
6. Önnur mál
Bygging slökkvistöðvar/áhaldahúss Björgunarfélagsins Kára í Öræfum í landi Skaftafells 2/Freysnes
Þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag fyrir umrætt svæði samþykkir bæjarráð með vísan til 3. tl. ákvæða til bráðabirgða í Skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 að veita Björgunarfélaginu Kára í Öræfum byggingarleyfi vegna slökkvistöðvar/áhaldahúss að því gefnu að meðmæli fáist frá Skipulagsstofnun vegna framkvæmdarinnar.
Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs kynnti drög að samningi við talmeinafræðing. Bæjarráð heimilar að gengið verði til samninga í samræmi við umræður á fundinum.
Lagt var fram bréf frá skólastjóra Hafnarskóla, Arnbjörgu Stefánsdóttur, dags. 10. maí sl. þar sem óskað er eftir heimild til að ráða þrjá aðstoðarkennara í stað stuðningsfulltrúa næsta skólaár.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar skólanefndar.
Undirskriftalisti frá íbúum á Leirusvæðinu dags. 11. maí sl. varðandi algjörlega óviðunandi umgengni við Bugðuleiru
2. Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka fljótt og vel á þessu máli auk þess að skoða aðrar ábendingar sem fram koma í bréfinu.
Bæjarstjóri gerði bæjarráði grein fyrir máli varðandi HSSA.
Friðrik spurði um framkvæmdir við Heppuskóla og sagði óviðunandi hvað þær hafa dregist. Bæjarráð er sammála um að gefa þeim sem hefur verkið með höndum skamman frest til að ljúka því, annars verður það falið öðrum.
Fundi slitið kl. 12:00


