Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 249
249. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 29. april 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir og Ásta H.Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 109. fundur 20. apríl 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 55. fundur 21. apríl 2004.
Reynir lýsti ánægju með samstöðu manna um tilraunadýpkun á Grynnslunum.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs og tómstundaráð 59. fundur 26. apríl 2004.
Bæjarráð fagnar þeirri samstöðu sem er um uppbyggingu sparkvallar við Heppuskóla. Bæjarráð óskar eftir því að bæjarstjóri og starfsmenn taki til endurskoðunar áður gerða kostnaðaráætlun. Bæjarstjóra er falið að senda inn umsókn og semja við Sindra varðandi framkvæmdina.
Varðandi brettaaðstöðu sem rætt er um í lið 3 kallar bæjarráð eftir tillögu frá æskulýðs- og tómstundaráði um staðsetningu og kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur Hauki Þorvaldssyni að koma verkefninu „Ísland á iði“ í framkvæmd.
Vegna bókunar undir lið 5 er bæjarráð sammála um að starfsemi Vinnuskólans verði á starfssviði æskulýðs- og tómstundaráðs. Bæjarráð hvetur íþróttahreyfinguna á Hornafirði til að sækja um að unglingalandsmót verði haldið hér 2006. Engar kvaðir eru um frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja umfram það sem er í dag vegna þeirrar umsóknar.
Fundargerð samþykkt.
2. Ársreikningar 2003 – A hluta reikninga dreift á fundinum
Fjármálastjóri fór yfir ársreikninga sveitarsjóðs og tengdra fyrirtækja og einnig Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Bæjarráð samþykkir að vísa reikningunum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Náttúrustofa Suðausturlands
• Skipan fulltrúa í undirbúningshóp
Skipan fulltrúa í undirbúningshópinn er frestað til næsta fundar.
4. NPP verkefnið – Inga Jónsdóttir mætir á fundinn
Inga Jónsdóttir mætti á fundinn og fór yfir undirbúning aðalumsóknar í Norðurslóðaverkefni. Óskað var eftir að sveitarfélagið verði formlegur umsóknaraðili að verkefninu ásamt Rannsóknarsetri Háskóla Íslands, Skaftárhreppi og Kelduneshreppi. Bæjarráð felur Ingu að vinna áfram að undirbúningi umsóknarinnar og mun taka afstöðu til beiðninnar um aðkomu sveitarfélagsins þegar frekari gögn liggja fyrir.
5. Samstarf Djúpavogshrepps og Hornafjarðar í hafnamálum.
Bæjarráð felur Reyni Arnarsyni og fulltrúa sem hafnarstjórn tilnefnir að hefja viðræður við Djúpavogshrepp um hugsanlegt samstarf í hafnarmálum.
6. Beiðni um að Stöðull verði bænahús
• Bréf Eddu Lúðvíksdóttur dags 14. apríl 2004.
Bæjarráð Hornafjarðar telur ekki forsendur til þess að verða við beiðni um að Stöðull verði skráð sem bænahús. Álagning fasteignaskatts verður því óbreytt.
7. Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera tillögu að samningi, í samráði við Hestamannafélgið Hornfirðing, um byggingu reiðskemmu á Hornafirði.
8. Beiðni um húsnæði til notkunar fyrir keramikverkstæði
• Bréf Ásgerðar Soffíu Jóhannsdóttur dags 19. apríl 2004.
Bæjarráð hefur ekki til umráða hentugt húsnæði sem hægt er að veita einstaklingum frían aðgang að. Bæjaráð bendir einnig á að nú eru starfrækt keramikverkstæði á Höfn og því gæti það orkað tvímælis að veita hugsanlegum samkeppnisaðila frítt húsnæði.
9. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Samgönguráðuneytisins dags. 13. apríl 2004 v. ályktana sveitarstjórna Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um fjarskiptamál.
Til kynningar.
• Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 15. apríl 2004 v. stuðnings Jöfnunarsjóðs við sameiningu sveitarfélaga.
Til kynningar.
• Tilkynning frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi um að aðalfundur félagsins verði haldinn á Hótel Héraði, Egilsstöðum fimmtudag og föstudag 16. og 17. september n.k.
Til kynningar.
10. Önnur mál
Líkamsræktartæki sveitarfélagsing
Tvö tilboð bárust í líkamsræktartæki sveitarfélagsins, annars vegar í 1 spinninghjól og hins vegar tilboð þess efnis að yfirtaka eldri samning sem gerður var við Orkuverið. Málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.
Sýningin Austurland 2004
Bæjarstjóri upplýsti að send hafi verið út bréf til yfir 100 aðila vegna málsins. Þrír hafa leitað upplýsinga um samstarf. Bæjarráð telur ekki grundvöll fyrir aðkomu að verkefninu.
Svar til Samkeppnisstofnun
Bæjarstjóri kynnti svarbréf til Samkeppnisstofnunar vegna fyrirspurnar um lénið hornafjordur.is.
Fundi slitið kl. 13:05


