Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 248
248. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 20. april 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson.
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir og Ásta H.Guðmundsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Byggingar- og skipulagsnefnd 52. fundur 5. apríl 2004.
Deiliskipulag á tjaldsvæði er tekið fyrir sem sérliður síðar á fundinum.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 56. fundur 14. apríl 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Fundargerðir HAUST 45. fundu r 31. mars og 46. fundur 1. apríl 2004 til kynningar.
2. Náttúrustofa Suðausturlands
• Skipan undirbúningshóps
Bæjarráð mun á næsta fundi tilnefna fulltrúa, einn frá hverju framboði í undirbúningshóp til stofnunar Náttúrustofu Suðausturlands.
Bæjarráð óskar einnig eftir því að Menningarmálanefnd Hornafjarðar tilnefni einn fulltrúa í undirbúningshópinn f.h. Jöklaseturs og Háskólasetrið á Hornafirði annan.
3. Fyrihugaðar framkvæmdir á Hafnarbraut
Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að útbúa framkvæmda- og kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Hafnarbraut í samræmi við hugmyndir sem kynntar hafa verið og unnar eru af Ullu Pedersen.
4. Deiliskipulag á tjaldsvæði
Dreift var nýrri tillögu frá tækni- og umhverfissviði að deiliskipulagi á tjaldsvæði, tillögu sem gerð var að ósk bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að ný tillagan verði auglýst.
5. Eignaskiptasamningur fyrir Nýheima
Símafundur var haldinn með fulltrúum arkitektastofunnar Glámu-Kím, Jóhannesi Þórðarsyni og Árna Kjartanssyni. Einnig voru þau Halldóra B. Jónsdóttir formaður bæjarráðs og Helgi Már Pálsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs stödd á fundarstað í Reykjavík. Bæjarráð er sammmála um að skoða uppgjör og skiptingu reksturs út frá drögum að eignaskiptasamningi sem Jóhannes hefur gert, samningi sem byggður er á rammasamningi þeim sem gerður var um bygginguna í mars 2000. Bæjarráð mun óska eftir viðræðum við menntamálaráðuneytið um rekstur Nýheima og uppgjör stofnkostnaðar um leið og gengið verður frá eignaskiptasamninginum.
6. Breyting á leigusamningi vegna 1. hæðar Ráðhúss
• Bréf sýslumannsins á Höfn dags. 10. apríl 2004.
Bæjarráð hefur vilja til að koma til móts við óskir sýslumanns um breytingu á leigusamningi vegna 1. hæðar Ráðhúss en á meðan ekki liggja fyrir tillögur um aðra nýtingu húsnæðisins er ekki unnt að taka ákvörðun í málinu. Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdastjóra með ósk um að lagðar verði fram tillögur til lausnar í málinu.
7. Aðalfundur Sparisjóðs Hornafjarðar og nágrennis 21. apríl 2004
Erindið er til kynningar
8. Ósk um umsögn
• Bréf Samkeppnisstofnunar dags. 6. apríl 2004 um málefni Galdurs ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að vinna umsögn um málið. Jafnframt er bæjarstjóra falið að ræða við aðila málsins um hugsanlegar lausnir hvað varðar notkun á léninu hornafjordur.is.
9. Ósk um styrk til verkefnisins Tákn með tali
• Bréf Ingu V. Einarsdóttur dags. 6. mars 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs.
10. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá Örnu Ósk Harðardóttur og Þórhalli Einarssyni dags. 5. apríl 2004.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi um málið.
• Bréf Fulltingis ehf. um málefni Norðuríss hf. dags 5. apríl 2004.
Til kynningar.
• Bréf ÍSÍ dags. 31. mars.2004 um verkefnið “ Ísland á iði “.
Erindinu er vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs.
• Bréf KSÍ dags. 7. apríl 2004 um KSÍ sparkvelli.
Erindinu er vísað til æskulýðs- og tómstundaráðs og tækni- og umhverfissviðs. Óskað er tillagna um útfærslu og kostnaðaráætlun.
• Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 7. apríl 2004 v/ starfsleyfi fyrir sambýli fyrir faltaða.
Til kynningar.
• Bréf UST dags. 7. apríl 2004 um Landsáætlun um meðhöldlun úrgangs.
Erindinu er vísað til tækni- og umhverfissviðs og umhverfisnefndar.
10. Önnur mál
Bæjarstjóri kynnti húsaleigusamning sem undirritaður hefur verið vegna leigu á húsnæði til handmenntakennslu í Vöruhúsi.
Fundi slitið kl. 12:25


