Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 246
246. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 6. april 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson
Einnig: Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 108. fundur 23. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar 59. fundur 31. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Fundargerð 712. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 19. mars 2004 – til kynningar
2. Beiðni um umsögn um frumvarp til jarðalaga, 783. mál, heildarlög og frumvarp til ábúðarlaga, 782. mál
Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
3. Samkomulag um afnot af Einarslundi við Fjárhúsahól
Bæjarstjóra er falið að ganga frá samkomulagi við Félag fulgaáhugamanna í samræmi við fram lögð drög.
4. Ákvörðun um meðferð líkamsræktartækja sveitarfélagsins í Orkuverinu
Bæjarráð samþykkir að líkamsræktartæki sveitarfélagsins verði auglýst til sölu og að reynt verði að selja öll tækin í einu lagi.
5. Beiðni um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Menningarráðs Austurlands
Bæjarráð tilnefnir Hermann Hansson og Halldóru B. Jónsdóttur fulltrúa sína á fundinn og til vara Elínu Magnúsdóttir og Ingu Jónu Halldórsdóttur. Fulltúi Kríunnar verður Þorbjörg Arnórsdóttir og til vara Inga Jónasdóttir.
6. Náttúrustofa Suðausturlands
Bæjarráð telur æskilegt að tilnefna vinnuhóp til að undirbúa málið. Á næsta fundi bæjarráðs verður tekin ákvörðun um framgang málsins.
7. Framkvæmdanefnd búvörðsamninga, bréf dags. 11. mars 2004 um eftirlit vegna gæðastýringar í sauðfjárframleiðslu
Grétar Már Þorkelsson búfjáreftirlitsmaður mætti á fundinn og fór yfir framkvæmd eftirlits vegna gæðastýringar í sauðfjárframleiðslu.
8. Skólaakstur
Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs kynnti drög að samningi við Austurleið-Kynnisferðir um skólaakstur fyrir skólaárið 2004 – 2005. Bæjarráð samþykkti fram lögð drög.
Stefán ræddi skólaakstur í dreifbýli. Bæjarráð felur framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs að hefja viðræður við aðila um málið.
9. Innsend erindi og til kynningar
• Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 24. mars 2004 um „ Dag umhverfisins“
Erindinu vísað til umhverfisnefndar.
10. Önnur mál
Sýningin Austurland 2004
Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að kalla saman þá aðila í sveitarfélaginu sem hugsanlega hefðu áhuga á því að kynna starfsemi sína á sýningunni.
Samningur vegna Humarhátíð
Bæjarstjóri kynnti drög að viðauka við samning um framkvæmd Humarhátíðar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi í samræmi við fram lögð drög.
Helgi Már sagði frá opnun tilboða í viðgerð á þaki á heimavist í Nesjaskóla og tengigangi.
Eitt tilboð barst frá Mikael ehf. og var það yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð hafnar tilboðinu og heimilar að verkið verði boðið út aftur.
Kynningarfundur um kvikmyndun Bjólfskviðu.
Halldóra og Reynir sögðu kynningarfund vegna fyrirhugaðrar kvikmyndatöku í sveitarfélaginu á Bjólfskviðu hafa heppnast vel.
Eignaskiptasamningur Nýheima
Helgi Már fór yfir stöðuna varðandi eignaskiptasamning fyrir Nýheima.
Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs kynnti drög að samningum um kaup á sálfræðiþjónustu.
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að ganga frá samningunum í samræmi við fram lögð drög.
Hann kynnti einnig drög að samningi um leigu á húsnæði fyrir handmenntastofur í Vöruhúsi. Kveða þarf skýrar á um nokkur atriði samningsins.
Elín vék af fundi undir þessum lið.
Næsti fundur bæjarráðs verður þriðjudaginn 20. april kl. 10.
Fundi slitið kl. 12:25


