Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 245
245. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 25. mars 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson og Einar Karlsson. Áheyrnarfulltrúi var Eyjólfur Guðmundsson
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 57. fundur 17. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 55. fundur 16. mars 2004.
Inga Jóna sagði að æskilegt sé talið að aðgangur að hefðbundnum byggðasöfnum sé ókeypis eins og hér er. Fram hafi komið mikil ánægja hjá fararstjórum með þá tilhögun. Einnig kom fram að sala minjagripa hafi aukist. Rætt um bifreiðakaup Menningarmiðstöðvar og spurt hvers vegna kaupin hafi ekki ekki verið lögð fyrir bæjarráð.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð 58. fundur 22. mars 2004.
Reynir fagnaði vinnu að forvarnamálum. Var undir það tekið af öðrum bæjarráðsmönnum. Eyjólfur benti á að koma mætti upplýsingum um starfsemi þá sem kynnt er í upplýsingabæklingi æskulýðs- og tómstundaráðs á vef sveitarfélagsins. Eyjólfur fagnaði þeirri vinnu sem er í gangi vegna félagsstarfa ungmenna á aldrinum 16 – 25 ára. Sagðist binda miklar vonir við þær fyrirætlanir. Tóku aðrir bæjarráðsmenn undir orð Eyjólfs. Fram kom að dræm aðsókn að félagsmiðstöðvum ungmenna er áhyggjuefni víðar en á Hornafirði. Voru fundarmenn því sammála að þessi mál þurfi að skoða sérstaklega.
Fundargerð samþykkt.
2. Upplýsingamiðstöð á Höfn
• Gísli Sverrir Árnason mætir á fundinn.
Inga Jóna fór yfir forsögu málsins og ástæðu þess að ákveðið var að kanna þann möguleika að upplýsingamiðstöð fari í umsjón Menningarmiðstöðvar. Einnig var greint frá því að þessi breyting kallaði á stofnkostnað, allt að krónum 800.000. Samþykkt að taka það fé af liðnum óráðstafað. Gísli er sammála því að uppplýsingamiðstöð verði í Nýheimum. Þannig verði betri nýting á húsnæði og starfsfólki, umferð um Nýheima muni aukast og þessi starfsemi gæddi húsið auk þess auknu lífi sem væri í samræmi við upphaflega hugmyndafræði þegar ákvörðun um byggingu Nýheima var tekin. Sagðist líta á þetta sem sameiginlegt markmið Menningarmiðstöðvar og sveitarfélagsins. Reynir lagði áherslu á að með þessu fáist aukin festa í starfsemi upplýsingamiðstöðvar og sagðist vilja sjá samning til 3 – 5 ára. Einnig var rætt um mikilvægi góðrar samvinnu við fyrirtæki í ferðaþjónustu um starfsemi upplýsingamiðstöðvar. Kom fram almenn ánægja hjá bæjarráði með þá fyrirætlan að upplýsingamiðstöð verði rekin með þessum hætti og samþykkti ráðið að hún verði í Nýheimum.
3. Innsend erindi og til kynningar
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 15. mars 2004, um alþjóðlega samkeppni um viðurkenningar fyrir starf samfélaga að umhverfismálum.
Til kynningar.
• Framkvæmdanefnd búvörusamninga, bréf dags. 11. mars 2004 um eftirlit vegna gæðastýringar í sauðfjárframleiðslu.
Lagt til að starfsmaður Búnaðarsambandsins komi á fund bæjarráðs til að skýra þessi mál nánar. Einnig að óskað verði upplýsinga frá landbúnaðarráðuneytinu um framkvæmd og kostnað.
• Kvískerjasjóður, bréf dags. 10. mars 2004 um styrkúthlutun sjóðsins 2004.
Stefán greindi frá vinnu nemenda Heppuskóla við merki Kvískerjasjóðs. Sjóðurinn hafi valið eina af tillögum nemenda sem sitt merki sem notað verður á bréfsefni o.fl. Verði veittar viðurkenningar fyrir þessa vinnu þegar styrkir sjóðsins verða afhentir í Freysnesi sunnudaginn 28. mars.
4. Önnur mál
• Inga Jóna greindi frá vinnu við samning við Þjónustumiðstöð SKG vegna tjaldstæðis á Höfn. Miðað er við að samningurinn verði til þriggja ára. Undir þessum lið var rætt um almenna meðferð samningsgerðar og með hvaða hætti þeir séu endanlega samþykktir. Bæjarráð veitir starfsmönnum heimild til að ganga frá samningi við eigendur SKG.
• Inga Jóna greindi frá samskiptum við Sisimiut á Grænlandi og undirbúningi vegna hugsanlegrar heimsóknar ungmenna þaðan til Hornafjrðar. Ljóst er að einhver útgjöld geta orðið vegna slíkrar heimsóknar. Samþykkt að heimilt sé að vinna áfram að þessu máli.
• Afhent samantekt Hauks Helga um gólfefni á íþróttahús. Fram kemur í þeirri samantekt að mikill mismunur er á verði gólfefna eftir gerð þeirra. Samkvæmt upplýsingum í samantektinni gæti nýtt gólfefni fyrir íþróttahúsið á Höfn kostað að fullu frágengið á bilinu 4 – 8 milljónir, allt eftir því hvaða útfærsla yrði fyrir valinu.
• Greint frá bréfi eigenda Orkuversins á Höfn þar sem segir að fyrirtækið hætti starfsemi þann 23. apríl næstkomandi. Stór hluti tækja sem þar eru innan dyra eru eign sveitarfélagsins. Lagði Stefán áherslu á að sem fyrst verði ákveðið hvað við þau skuli gera.
• Inga Jóna greindi frá því að starfsmenn Þróunarstofu Austurlands hafi áhuga á því að hitta bæjarstjórn á fundi. Stefnt að því að funda með þessum starfsmönnum eftir fund bæjarstjórnar fimmtudaginn 1. apríl.
Fundi slitið kl. 12: 00


