Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 244
244. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 18. mars 2004, kl 10:00
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir og Reynir Arnarson. Áheyrnarfulltrúar voru Björn E. Traustason og Eyjólfur Guðmundsson
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
•Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 51. fundur 11. mars 2004.
Óskað var eftir því að skoðað verði nánar ferlið varðandi afgreiðslu deiliskipulags.
Fundargerð samþykkt.
• Félagsmálalráð Hornafjarðar 107. fundur 9. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 42. fundur 8. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga 711. fundur, 20. febrúar 2004 – til kynningar
2. Vínveitingaleyfisumsókn
• Umsókn Frú Maríu ehf. dags. 10. febrúar 2004.
Bæjarráð samþykkir að veita Frú maríu ehf. leyfi til áfengisveitinga (léttvínsleyfi) í 6 mánuði april – september 2004.
3. Frumvarp að frjálsum nauðarsamningum fyrir Norðurís. hf.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi frumvarp að frjálsum nauðasamningi félagsins við lánadrottna og velur valkost 1.1.1.
4. Beiðni um stofnaðild sveitarfélagsins að fuglaathugunarstöð á Höfn
Bæjarráð Hornafjarðarðar samþykkir að Sveitarfélagið Hornafjörður gerist stofnaðili að félagi um Fuglaathugunarstöð á Höfn.
Aðildinni fylgir ekki kvöð um fjárhagslega ábyrgð.
5. Ósk um styrk
• Krossgötur, bréf dags. 4. mars 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs til afgreiðslu.
6. Innsend erindi og til kynningar
• Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 10. mars 2004, um ósk um viðræður vegna leigusamnings um húsnæði að Hafnarbraut 27.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í viðræður við sýslumann um málið og lagðar fyrir formlegar tillögur um lausn málsins.
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 4. mars 2004, vegna meðhöndlunar úrgangs í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að svara erindinu.
• Lára Júlíusdóttir hrl, bréf dags. 27. febrúar 2004, niðurstaða sáttanefndar Vökuls og sveitarfélagsins.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Erindi frá Siglingarstofnun dags. 9. mars 2004 um tilboð frá fjórum efnissölum stálþils og stálþilsfestinga vegna framkvæmda við Hornafjarðarhöfn
Bæjarráð samþykkir að gengið verði sem fyrst til samninga við G. Arason ehf/Arcelor á grundvelli tilboðs merkt B sem hljóðar upp á 213.873 EUR eða 18.587.702 kr.
Tilkynning um aðalfund Frumkvöðlaseturs Austurlands sem haldinn verður 22. mars nk.
Bæjarráð felur Alberti Eymundssyni að fara með umboð sitt á fundinum.
Erindi frá Hafnarskóla og Nesjaskóla þar sem farið er fram á styrk vegna umhverfisviku
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur starfsmönnum að leita leiða til að koma til móts við óskir skólastjórnenda.
Aðstaða fyrir torfæru-bifhjólahóp (motorcross) á Höfn
Helgi Már fór yfir svæði sem skoðuð hafa verið m.t.t. úthlutunar fyrir torfæru-bifhjólahóp.
Bæjarráð tekur ekki afstöðu til málsins nú en hugnast þó best möguleiki 2 af þeim 5 sem kynntir voru eða svæði við Fjárhúsavík. Bæjarráð óskar eftir að fleiri möguleikar verði skoðaðir í málinu, utan Hafnarlandsins. Þegar allir möguleikar liggja fyrir verður málinu vísað til viðeigandi nefnda til umsagnar.
Upplýsingamiðstöð á Hornafirði – staða málsins kynnt
Bæjaráð stefnir að því að taka formlega afstöðu til staðsetningar upplýsingamiðstöðvar í næstu viku og fjármögnun starfseminnar.
Samningur um skólaakstur
Stefán sagði frá því að hann hefur hafið samninga við Austurleið-Kynnisferðir um framlengingu samnings um skólaakstur.
Samningur um sérfræðiþjónustu
Bæjarráð felur Stefáni að hefja viðræður við aðila um kaup á sérfræðiþjónustu.
Fundi slitið kl. 12:15


