Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 243
243. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 11. mars 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson..
Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 11. fundur 1. mars 2004.
Reynir gerði grein fyrir stöðunni við klasaverkefnið og greindi frá því að fram hafi komið áhugi á þessu verkefni. Hrósaði hann Ara Þorsteinssyni fyrir hans vinnu við verkefnið. Einnig rætt um líftæknifyrirtæki í landbúnaði. Bæjarráð lýsir ánægju með þetta verkefni og störf þeirra sem að því koma. Binda menn vonir við að slíkt líftæknifyrirtæki geti leitt til verulegra framfara fyrir landbúnað í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 53. fundur 3. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs og tómstundaráð 57. fundur 1. mars 2004.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um vatnsveitur sveitarfélaga, 576. mál.
Helgi gerði grein fyrir þeim breytingum sem frumvarpið hefur í för með sér. Bæjarráð tekur undir meginmarkmið frumvarpsins og leggur til að það verði samþykkt.
3. Efling sveitarstjórnarstigsins (gögn áður send)
Farið var yfir gátlista sem sendur var frá SSA. Verður einnig rætt í bæjarstjórn.
4. Ósk um úthlutun á svæði fyrir motorcross
Bréf lögreglunnar á Höfn ódagsett.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs.
• Innsend erindi og til kynningar
• Könnun á þróun og nýmælum í stjórnun íslenskra sveitarfélaga., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga 26. febrúar 2004.
Til kynningar.
• Ráðstefna um Staðardagskrá 21 á Ísafirði 26. og 27. mars,, bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga 27. febrúar 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar.
• Endurbætur á vegi upp að Jöklaseli, bréf Bjarna Skarphéðins Bjarnasonar dags. 25. febrúar 2004.
Bæjarráð tekur undir nauðsyn endurbóta á veginum upp að Jöklaseli og mun senda Vegagerðinni bréf um málið.
• „Góðar fyrirmyndir“ ráðstefna um málefni fatlaðra 26. mars á Hótel Nordica, bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 3. mars 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs.
• Grunnskólaþing sveitarfélaga 26. mars á Hótel Sögu , bréf Sambands ísl. Sveitarfélaga dags. 5. mars 2004.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs.
• Sýningin Austurland 2004, bréf Þróunarstofu Austurlands dags. 3. mars 2004.
Vísað til starfsmanna að kynna þessa sýningu fyrir fyrirtækjum og stofnunum í sveitarfélaginu.
Önnur mál
• Heimsókn Ómars Bjarka Smárasonar frá Stapa ehf. Gerði hann grein fyrir stöðunni í jarðhitaleit við Hoffell í Nesjum. Það blasir við, að mati Ómars Bjarka, að líkur á nýtanlegum jarðhita séu miklar og því mikilvægt að halda áfram borun við rannsóknarholur.
• Heimsókn fulltrúa Vökuls stéttarfélags, þeirra Þorkels Kolbeins og Hjördísar Þóru Sigurþórssonar. Höfðu fulltrúarnir óskað bréflega eftir því að fá að hitta bæjarráð. Gerðu þeir grein fyrir þeirri stöðu sem skapast hefur við lokun fiskverkunarfyrirtækisins Fiskgæða ehf. Þann 5. mars sl. voru 42 einstaklingar á atvinnuleysisskrá, 27 konur og 15 karlar. Fjölgaði atvinnulausum um 17 manns við lokun Fiskgæða. Fram komu í máli fundarmanna áhyggjur af því ástandi sem skapast hefur þó ýmislegt jákvætt sé einnig að gerast á sviði atvinnulífs. Ræddu fulltrúar Vökuls um þá lagalegu leynd sem hvílir yfir atvinnuleysisskráningu. Sú leynd hefur gert atvinnurekendum ókleift að fara yfir skrána þegar þeir leita eftir starfsmönnum. Kom fram sú skoðun hjá Halldóru að þetta fyrirkomulag sé til trafala þegar leitað er eftir starfsfólki. Fulltrúar verkalýðsfélagsins töldu að atvinnumiðlun og upplýsingar um þá sem eru á atvinnuleysisskrá ættu að vera heima í héraði. Bentu þeir einnig á að nú sé hægt að fá upplýsingar úr atvinnuleysisskrá hafi hinir atvinnulausu samþykkt skriflega að gefa slíkar upplýsingar. Þorkell benti á mikla fækkun starfa sem átt hefur sér stað undanfarin ár. Reynir benti á að hingað vanti stöðug heilsársstörf.
• Helgi Már gerði grein fyrir deilisikipulagi vegna sumarhúsabyggðar á tjaldstæðinu á Höfn. Fram komu efasemdir hjá Reyni um að fara með fleiri en fimm sumarhús á svæði milli vatnstanks og þeirra sumarhúsa sem fyrir eru.
Fundi slitið kl. 12:40


