Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 242
242. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn 2. mars 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 106 . fundur 24. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 48. fundur 28. janúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 49. fundur 24. febrúar 2004.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs og felur starfsmönnum að ítreka ósk um að heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið taki upp viðræður hið fyrsta við sveitarfélagið um endurskoðun á þjónustusamningi um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.
Fundargerð samþykkt.
• Skólanefnd Hornafjarðar 58.fundur 24.febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðiseftirlit Austurlands 44. fundur 18. febrúar 2004. – til kynningar
2. 3ja ára áætlun
Fjármálastjóri fór yfir 3ja ára áætlun. Bæjarráð samþykkir að veitukerfi sveitarfélagsins færist yfir í B-sjóð frá og með 1. janúar 2004. Bæjarráð vísar 3ja ára áætlun til annarar umræðu í bæjarstjórn.
3. Leikskólinn Óli prik – ákvörðun um framtíð
Eyjólfur leggur til að endanleg ákvörðun um framtíð Óla Priks verði ekki tekin fyrr en málið hefur verið formlega kynnt. Bæjarráð tekur undir tillögu Eyjólfs og felur bæjarstjóra og starfsmönnum að skipuleggja kynninguna.
4. Færsla Prestbakkalínu
Fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunar sem telur framkvæmdina óverulega og að ekki þurfi að breyta aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna hennar.
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að veita Landsvirkjun framkvæmdaleyfi vegna færslu Prestbakkalínu 1 austan Jökulsár á Breiðamerkursandi.
5. Beiðni um framlag til kaupa á ljósritunarvél í Heppuskóla
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir fjárframlag til Heppuskóla að upphæð kr. 400.000 til endurnýjunar á ljósritunarvél.
6. Tilboð Norðuríss hf. um uppgjör á ótryggðum kröfum vegna nauðasamninga – til kynningar
7. Innsend erindi og til kynningar
• Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, bréf um undibúningsnefnd vegna byggingar 2. áfanga Hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs dags. 30. janúar 2004.
Til kynningar.
• Vegagerðin, bréf um ályktun um vegabætur á þjóðvegi 1 í Skaftárhreppi og Sveitarfélaginu Hornafirði, dags. 22. febrúar 2003.
Til kynningar.
• Náttúrustofnun Suðurlands, bréf þar sem boðin er aðstoð vegna þjóðgarða og náttúruverndaráætlun, dags. 18. febrúar 2004.
Til kynningar.
• Skipaskoðun, ódagsett bréf um breytingu á tilhögun á skipaskoðun.
Til kynningar.
• Byggingarfulltrúi Hornafjarðar, 3 bréf með umsögnum Byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar á erindum frá bæjarráði.
Til kynningar.
8. Önnur mál
Kynnt var minnisblað frá framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs dags. 2. mars 2004 vegna fyrirhugaðrar kvikmyndatöku í sveitarfélaginu.
Tjaldsvæðið á Höfn
Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs upplýsti að ekki hafi borist nein kauptilboð í þjónustuhús á tjaldsvæði. Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við Þjónustumiðstöð SKG um rekstur tjaldsvæðisins til næstu þriggja ára.
Stofnframlag til uppbyggingar menningarhúsa
Vegna stofnframlaga til menningarhúsa 2003 og 2004 samtals 14 milljónir felur bæjarráð menningarmálanefnd að leggja fram tillögur að ráðstöfun fjárins.
Kynnt var bréf frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi dags. 27. feb. 2004 og meðfylgjandi gátlisti vegna átaks í eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Fundi slitið kl.12:10


