Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 241
241. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 19. febrúar 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Þorbjörg Arnórsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Byggingar- og skipulagsnefnd 50. fundur 12. febrúar 2004.
Undir 7. lið þar sem fjallað er um smáhýsi á tjaldsvæði felur bæjarráð tækni- og umhverfissviði að gera tillögur um málið. Halldóra vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð kallar eftir nánari upplýsingum um söfnuð þann sem stendur að Stöðli og umfangi hans áður en erindið verður afgreitt. Bæjarráð samþykkir að deiliskipulag frístundabyggðar í Freysnesi, Öræfum verði auglýst.
Fundargerð samþykkt.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 105 . fundur 10. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 56. fundur 11. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 54. fundur 11. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Samband íslenskra sveitarfélaga 710. fundur 23. janúar 2004 – til kynningar.
Þorbjörg ræddi stofnkostnað við byggingu framhaldsskóla og þá staðreynd að normkostnaður stendur ekki undir 60% byggingarkostnaðar. Hún hvatti til þess að sveitarfélagið leitist við að ná fram leiðréttingu varðandi kostnaðarskiptingu við byggingu Nýheima.
2. Beiðni umhverfisnefndar Alþingis um umsögn um náttúruverndaráætlun 2004 – 2008
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við áætlunina en ítrekar mikilvægi þess að gott samráð og samvinna sé höfð við landeigendur og heimaaðila um framhald málsins og áskilur sér rétt til að gera athugasemdir á síðari stigum.
3. Beiðni umhverfisnefndar Alþingis um umsögn um frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum og frumvarp til skipulags- og byggingarlaga
Bæjarráð tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvörpin.
Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að vinna drög að gjaldskrá fyrir framkvæmdaleyfi.
4. Beiðni félagsmálaráðuneytisins um umsögn um drög að reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum
Afgreiðslu frestað.
5. Skipan fulltrúa í nefnd sem skila á tillögum um fyrirkomulag mötuneytismála í grunnskólum
Bæjarráð skipar Reyni Arnarson fulltrúa sinn í nefndinni. Aðrir fulltrúar eru Arnbjörg Stefánsdóttir og Sigríður Kristinsdóttir. Starfsmaður nefndarinnar er Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og er honum falið að kalla nefndina saman.
6. Stuðningur við millilandaflug LTU til Egilsstaða sumarið 2004
Bæjarráð samþykkir að veita áfram stuðning við verkefnið á sama hátt og á síðasta ári .
7. Innsend erindi og til kynningar
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 28..janúar 2004 til félagsmálaráðherra vegna óskar um viðræður um fjármögnun og framtíð húslaeigubóta.
Til kynningar.
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags 10. febrúar 2004 um grunnskólaþing. sveitarfélaga 26. mars n.k. undir yfirskriftinni „ Er grunnskólinn kominn til sveitarfélaganna“
Til kynningar.
• Óperustúdíó Austurlands, bréf um málþing um stöðu og framtíð Óperustúdíósins, dags. 16. febrúar 2004.
Til kynningar.
8. Önnur mál
Þorbjörg ræddi tilnefningu í nefndir og hvort einhverjar reglur séu í gildi hjá núverandi meirihluta.
Halldóra sagði viðmiðið vera það að ef þrír fulltrúar eru tilnefndir þá sé einn fulltrúi frá hverju framboði, ef færri eru í nefnd sé eðlilegt að þeir komi frá meirihluta.
Þorbjörg óskar eftir að samband verði haft við forystu minnihluta um tilnefningu þegar óskað er eftir tilnefningum frá þeim.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs ræddi afslátt á fasteignaskatti og útfærslu við útreikning hans. Bæjarráð felur fjármálastjóra að afgreiða málið.
Fjármálastjóri upplýsti að nýjar reglur munu leiða til lækkunar tekna sveitarfélagsins þar sem fleiri eiga rétt á niðurfellingu.
Kynnt var námskeið sem haldið verður á næstunni og ber heitið Frumkvöðlafræði fyrir alla. Bæjarráð samþykkir að styðja við framtakið og felur starfsmönnum að koma því á framfæri.
Kynnt var bréf frá sýslumannin dags. 17. febrúar 2004 um væntanlegt nauðungaruppboð. Starfsmönnum er falið að gæta hugsanlegra hagsmuna sveitarfélagsins í málinu.
Fundi slitið kl. 11:50


