Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 240
240. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 12. febrúar 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 104. fundur 3. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 41. fundur 9. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
2. Þriggja ára áætlun
Bæjarstjóri lagði áherslu á að um fyrstu drög er að ræða sem umræða eigi eftir að fara fram um.
3. Beiðni umhverfisnefndar Alþingis um umsögn um náttúruverndaráætlun 2004 – 2008
Fram kom að beðið er svars frá umhverfisráðuneytinu um hvenær búast megi við kynningarfundi hér í sveitarfélaginu um áætlunina. Erindið verður tekið fyrir aftur síðar.
4. Skólaakstur skólaárið 2004 – 2005
Samkvæmt upplýsingum bæjarstjóra og framkvstj. fræðslu- og félagssviðs ríkir nokkur óvissa um fyrirkomulag sérleyfa til hópferðaflutninga allt til ársins 2005 er öll sérleyfi verða boðin út. Þessi óvissa hefur áhrif á allt umhverfi fyrirtækja í þessari atvinnugrein. Það er mat aðila, sem leitað hefur verið álits hjá, að vafasamt sé að efna til útboðs á skólaakstri við þessar aðstæður.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við Austurleið/Kynnisferðir um að fyrirtækið sinni áfram á sama hátt skólaakstri í sveitarfélaginu út skólaárið 2004-2005.
5. Refa- og minkaveiðar í sveitarfélaginu
Framkvæmdastjór stjórnsýslusviðs lagði fram minnisblað um fyrirkomulag refa- og minkaveiða í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að hætta greiðslu fyrir refa- og minkaveiðar til annarra en ráðinna veiðimanna frá og með 1. mars 2004. Bæjarráð samþykkir jafnframt að fyrirkomulag veiðanna í heild og ákvörðun um upphæð greiddra veiðilauna verði endurskoðuð þegar nefnd sem umhverfisráðherra hefur skipað hefur skilað tillögum sínum.
6. Heimsókn framkvæmdaaðila Humarhátíðar
Björn Ingi Jónsson, Gestur Halldórsson og Hafliði Guðmundsson mættu á fundinn til að ræða um það fyrirkomulag sem verið hefur á Humarhátíðinni og hvernig við viljum sjá hátíðina til framtíðar.
7. Samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs fór yfir drög að „Samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla Hólmslinda í Laxárdal“. Bæjarráð vísar drögunum til umhverfisnefndar til umsagnar.
8. Innsend erindi og til kynningar
• Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 3. febrúar 2004 um framlag úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélagsinv á árinu 2004.
Til kynningar.
• Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 5. febrúar 2004 um uppgjör v. sölu á Hrísbraut 11.
Til kynningar.
• Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 3. febrúar 2004 vegna breytinga á aðalskipulagi Hornafjarðar 1998 – 2018 v. gerð varnargarðs við Fláajökul.
Til kynningar.
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 3. febrúar 2004 um húsaleigubætur og endurgreiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Til kynningar.
• Samband sveitarfélaga á Austurlandi, bréf dags. 4. febrúar 2004 um átak í eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Rætt var um erindið og samþykkt að taka það formlega á dagskrá síðar.
9. Önnur mál
Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs sagði frá áhuga nema í 8. bekk í Sisimiut á Grænlandi á heimsókn hingað á næsta skólaári.
Bæjarráð Hornafjarðar fagnar hugmyndum um heimsókn skólabarna frá Sisimiut á Grænlandi og felur skólastjórnendum Heppuskóla, menningarmálanefnd og starfsmönnum bæjarskrifstofu að vinna að undirbúningi málsins.
Fundi slitið kl. 12:30


