Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 239
239. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 5. febrúar 2004, kl 10:00
Mætt voru: Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Í upphafi fundar kom Guðni Ágústson landbúnaðarráðherra í heimsókn og ræddi við bæjarráðsmenn.
1. Fundargerðir
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 10. fundur 27. janúar 2004.
Bæjarráð samþykkir að gert verði minnisblað um refa- og minkaveiðar og erindið tekið fyrir síðar sem sérliður.
Fundargerð samþykkt.
• Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 49. fundur 2. febrúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 52. fundur 26. janúar 2004 og 53. fundur 2. febrúar 2004.
Fundargerðir samþykktar.
• Skólanefnd Hornafjarðar 57. fundur 28. janúar 2004.
Bæjarráð fagnar þeim árangri sem náðst hefur í því að draga úr einelti í hornfirskum skólum.
Bæjarráð samþykkir að skipuð verði þriggja manna nefnd sem skili tillögum um fyrirkomulag mötuneytismála í skólum. Bæjarráð skipar einn aðila, skólanefnd annan og skólastjórnendur Heppu- og Hafnarskóla þriðja aðilann.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð 56. fundur 26. janúar 2004.
Bæjarráð leggur til að framkvæmdaaðilar Humarhátíðar hittist og fari yfir fyrirkomulag hátíðarinnar.
Stefán afhenti skýrslu um „Vímuefnaneyslu ungs fólks á Hornafirði“.
Fundargerð samþykkt.
2. Þriggja ára áætlun
Ásta fór yfir drög að þriggja ára áætlun sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja. Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn
3. Styrkveitingar 2004
Bæjarráð samþykkir fram lagðar tillögur um styrkveitingar ársins 2004.
4. Ósk Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir færslu á Prestbakkalínu 1 vegna landbrots austan Jökulsár á Breiðamerkursandi
Bæjarráð samþykkir að kalla eftir umsögn Skipulagsstofnunar og vísar málinu til byggingar- og skipulagsnefndar til umsagnar.
5. Kaup og sala á landskika úr Litlasandi við hestamannavöllinn að Fornustekkum
Bæjarráð samþykkir að kaupa landskika úr Litlasandi af landbúnaðarráðuneytinu og endurselja Hestamannafélaginu Hornfirðingi fyrir sömu upphæð.
6. Skýrsla félagsmálastjóra um starfsemina 2003
Birgir Kjartansson félagsmálastjóri mætti á fundinn og fór yfir starfsemi félagsmálaráðs og félagsmálastjóra á liðnu ári.
7. Leikskólinn Óli Prik – ákvörðun um framtíð
Í samræmi við þá stefnu sem fram kom við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2004 samþykkir bæjarráð að vísa ákvörðun um framtíð leikskólans til umfjöllunar í skólanefnd.
8. Umsókn frá Olíufélaginu hf. um stækkun lóðarinnar að Vesturbraut 1
Bæjarráð samþykkir umsókn frá Olíufélaginu hf. um stækkun lóðar í samræmi við fram lagða teikningu tækni- og umhverfissviðs og leggur jafnframt áherslu á að aðstaða barna til leikja í og við “Strumphól” verði ekki skert.
9. Samkomulag við hestamenn um aðstöðu á hjallasvæðinu við Ægissíðu
Bæjarráð samþykkir fram lögð drög að samningi. Einnig var rætt um aðstæður á þessu svæði og mikilvægi þess að rusl verði fjarlægt og gengið frá svæðinu.
10. Innsend erindi og til kynningar
• Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 16. janúar 2004 um skóladaga og kennslustundafjölda í grunnskólumskólaárið 2002-2003.
• Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 22. janúar 2004 um ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins að árið 2004 skuli vera „Evrópuár menntunar með iðkun íþrótta“
Þetta hefur verið tekið fyrir í skólanefnd.
• Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 20 janúar 2004 um útreikning tekjujöfnunarframlaga, útgjaldajöfnunarframlaga og hlutdeild í 400 m.kr. aukaframlagi á árinu 2003.
Til kynningar.
• Þróunarstofa Austurlands, bréf dags. 22. janúar 2004 um framlög sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Til kynningar.
• Nefnd um sameiningu sveitarfélaga, bréf dags. 22. janúar 2004 þar sem óskað er samstarfs landshlutasamtaka um vinnslu tillagna um sameiningarkosti.
Til kynningar.
• Landvernd, bréf dags. 23. janúar 2004 þar sem óskað er áframhaldandi samstarfs um verkefnið „Vistvernd í verki“
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar til umsagnar.
• Forstöðumenn Nýheima, bréf dags. 26. janúar2004 þar sem fram koma tillögur um fyrirkomulag á sameiginlegum rekstri í Nýheimum.
Til kynningar.
• Veraldarvinir, tölvupóstur dags. 26. janúar 2004 um mögulegt samstarf við sveitarfélagið sumarið 2004.
Sveitarfélagið hefur tekið þátt í ofangreindu verkefni sl. tvö ár. Í ljósi þess að mönnun á tækni- og umhverfissviði verður í lágmarki í sumar vegna fæðingarorlofs starfsmanna samþykkir bæjarráð að taka ekki þátt í verkefninu í ár.
• Náttból, bréf dags. 26. janúar 2004 þar sem óskað er eftir leyfi til að reisa 8-10 ný smáhýsi á tjaldsvæðinu á Höfn.
Bæjarráð vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar til frekari vinnslu og umsagnar.
• Hrollaugur, félag smábátaeigenda á Hornafirði, bréf móttekið 27. janúar 2004 þar sem lýst er óánægju með úthlutun byggðakvóta í sveitarfélaginu.
Til kynningar. Bæjarstjóra falið að svara þessu bréfi.
• Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 26. janúar 2004 þar sem óskað er upplýsinga úr launakerfi vegna starfsmatsvinnu.
Bæjarráð vísar erindinu til framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs og launafulltrúa.
• Umhverfisstofnun, bréf dags. 29. janúar um skert endurgreiðsluhlutfall vegna refa- og minkaveiða.
Til kynningar.
• Hagstofan, bréf dags. 16. janúar 2004 um breytta útgáfu Hagtíðinda 2004.
Til kynningar.
Önnur mál
Albert greindi frá erindi Vegagerðarinnar vegna merkinga við þjóðveg 1. Kostnaður sveitarfélagsins er um 1,5 milljón. Í samræmi við fyrri tillögur samþykkir bæjarrráð að taka þátt í verkefninu og verður kostnaður tekinn af liðnum óráðstafað.
Fundi slitið kl. 13:10


