Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 238
238. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 22. janúar 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Þorbjörg Arnórsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 103. fundur 13. janúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 53. fundur 14. janúar 2004.
Fundargerð samþykkt.
2. Reglur Sveitarfélagsins um afslátt af fasteignaskatti
Bæjarráð samþykkir fram lögð drög að reglum um afslátt af fasteignaskatti.
3. Samningur milli Sveitarfélagsins og Menningarmiðstöðvar v. vinnu við Jöklasetur
Gísli Sverrir Árnason og Inga Jónsdóttir mættu á fundinn til að fara yfir samningsdrögin.
Fyrir liggur að fara þarf í viðamikið starf í tengslum við stofnun Jöklaseturs m.a. stofnun sjálfseignarstofnunar og leit að stuðnings/samstarfsaðilum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi í samræmi við umræður á fundinum.
4. Beiðni ábúanda um umsögn vegna kaupa á jörð
Bæjarráð Hornafjarðar staðfestir að Einar Sigurbergsson hefur setið ábýlisjörð sína, Þinganes vel í ábúðartíð sinni og mælir með því að hann fái jörðina keypta..
5. Erindi frá þorrablótsnefnd Nesja- og Lónmanna
Bæjarráð hafnar beiðni um endurskoðun á leigu á Mánagarði vegna Þorrablótsskemmtunar enda fylgir slíkri skemmtun verulegur kostnaður fyrir Sveitarfélagið.
6. Erindi frá Litboltafélagi Hornafjarðar
Bæjarráð vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar og æskulýðs- og tómstundaráðs til umsagnar.
7. Beiðni um aukafjárveitingu til Menningarmiðstöðvar v. kaupa á ljósritunarvél
Bæjarráð samþykkir að veita Menningarmiðstöð aukafjárveitingu að upphæð kr. 200.000.
Elín vék af fundi.
8. Innsend erindi og til kynningar
• Fjárlaganefnd, bréf dags. 13. janúar um úthlutun til Jöklaseturs
Til kynningar.
• Samband sveitarfélaga á Austurlandi, bréf dags. 2. janúar um áframhaldandi gerð jarðganga á Austurlandi
Þorbjörg minnti á mikilvægi úrbóta á veginum yfir Öxi.
Til kynningar.
• Verkefnastjórn sjálfstyrkingarverkefnisins „ Ég er húsið mitt“ bréf dags. 14. janúar 2004 með beiðni um þátttöku félagsins í verkefninu.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs.
• Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 15. janúar 2004 um leigumarkað og framboð leiguíbúða
Til kynningar.
• UMFÍ, bréf dags. 12. janúar 2004 um tillögur sambandsþings UMF’;I til sveitarfélaga
Til kynningar.
9. Önnur mál
Bæjarstjóri sagði frá alþjóðlegri ráðstefnu sem fyrirhugað er að halda hér í júní 2005. Yfirskrift ráðstefnunnar verður: International Costal Symposium in Iceland.
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi undirbúning að ráðstefnunni.
Erindi frá Landbúnaðarráðuneyti þar sem óskað er skriflegs samþykkis bæjarstjórnar á sölu á jörðinni Volaseli
Bæjarráð Hornafjarðar staðfestir að Benedikt Egilsson hefur setið ábýlisjörð sína, Volasel vel í ábúðartíð sinni og samþykkir meðfylgjandi afsal.
Erindi frá Olíufélaginu hf. þar sem kynnt er tillaga að byggingu þjónustuhúss, uppsetningu dæla og skyggnis á lóðinni að Vesturbraut 1.
Bæjarráð vísar erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar til umsagnar.
Helga Hreinsdóttir framkvæmdastjóri HAUST og Sigrún Hallgrímsdóttir matvælafræðingur sem er nýr heilbrigðisfulltrúi Sveitarfélagsins komu í heimsókn á fundinn.
Umsókn til Sveitarfélagsins um styrk vegna tónlistarnáms skólaárið 2003-2004
Bæjarráð hafnar umsókninni á sömu forsendu og fyrri umsóknum um styrki vegna tónlistarnáms framhaldsskólanema.
Fundi slitið kl.12:25


