Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 237
237. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 15. janúar 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Úthlutun styrkja
Bæjarráð samþykkir að veita eftirfarandi aðilum styrk:
Sóknarnefnd Kálfafellssóknar 50.000 kr.
Björgunarfélag Hornafjarðar 200.000 kr.
Búnaðarsamband A-Skaft. 50.000 kr.
Félag Fuglaáhugamanna á Hornafirði 50.000 kr.
Skógræktarfélag A-Skaft. 150.000 kr.
Ferðafélag A-Skaft. 50.000 kr.
Félag aldraðra 350.000 kr.
Samtals 900.000 kr.
2. Þróunar- og endurmenntunarsjóður - breytingar á reglugerð
Tillaga var gerð um breytingu á 4. lið í reglum um þróunar- og endurmenntunarsjóð og að greinin verði eftirfarandi :
Umsóknir frá forstöðumönnum stofnana Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem eru rökstuddar og í samræmi við sí- og endurmenntunaráætlanir stofnanna hafa forgang við úthlutun. Veita má styrki til náms eða námskeiða innanlands eða utan. Aðrar styrkumsóknir verða að hafa beina skírskotun til starfs umsækjanda. Að öllu jöfnu skulu þeir njóta forgangs til styrkjar sem ekki hafa hlotið styrk á síðustu tveimur árum.
Bæjarráð samþykkir breytinguna.
3. Innsend erindi og til kynningar
• Félagsmálaráðuneytið vegna uppreiknaðra tekju- og eignamarka v/viðbótarlána og félagslegra leiguíbúða, bréf dags. 5. janúar 2004.
Til kynningar.
• Samband íslenskra sveitarfélaga vegna Tímaritsins Sveitarstjórnarmál, dags. 5. janúar 2004.
Til kynningar.
• Varasjóður húsnæðismála vegna rekstrarframlaga til sveitarfélaga, bréf dags. 6. janúar 2004.
Til kynningar.
• Lánasjóður sveitarfélaga vegna lánsumsókna 2004, bréf dags. 7. janúar 2004.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um lán að upphæð 40 milljónir til Lánasjóðs sveitarfélaga.
• Samband sveitarfélaga á Austurlandi, bréf dags. 8. janúar 2004.
Til kynningar.
• Varasjóður húsnæðismála vegna gjalds sveitarfélaga í sjóðinn vegna viðbótarlána í des. 2003.
Til kynningar.
• Samband íslenskra sparisjóða, bréf dags. 8. janúar 2004.
Til kynningar.
• Umhverfisráðuneytið vegna meðhöndlunar úrgangs, bréf dags. 6. janúar 2004.
Til kynningar.
4. Önnur mál
Bókun bæjarráðs vegna fyrirhugaðrar stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs
Bæjarráð Hornafjarðar styður heilshugar stofnun Vatnajökuksþjóðgarðs á grundvelli þeirra hugmynda sem unnið hefur verið að undanfarin ár.
Bæjarráð tekur undir tillögur um að Vatnajökulsþjóðgarður verði sérstök stofnun með lögum frá Alþingi. Til að tryggja skilvirka stjórnun og sterkara bakland er mikilvægt að heimaaðilar komi sem mest að stjórnun þjóðgarðsins.
Jafnframt telur bæjarráð að skoða eigi vandlega hugmyndir um svæðaskiptingu þjóðgarðsins, sérstaklega með tilliti til stækkunar hans í framtíðinni.
Verði það niðurstaðan að skipta þjóðgarðinum með svæðisbundnum stjórnum telur bæjarráð eftir sem áður mikilvægt að sameiginleg stjórn verði yfir þjóðgarðinum til að samræma heildarhagsmuni hans.
Bæjarráðið ítrekar fyrri ályktanir og áherslur um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem samþykktar hafa verið í bæjarstjórn Hornafjarðar og telur aldrei of oft minnt á nauðsyn þess að tryggt verði nægjanlegt fjármagn til stofnunar og reksturs, þannig að sómi verði að frá upphafi. Fulltrúar sveitarfélagsins í nefnd um stofnun þjóðgarðsins hafa fullt umboð til að fylgja eftir samþykktum bæjarstjórnar í þessum málum.
Bæjarfulltrúi Kríunnar, Eyjólfur Guðmundsson lagði fram eftirfarandi bókun varðandi Vatnajökulsþjóðgarð:
Bæjarfulltrúi Kríunnar vísar til fyrri stefnumótunar um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem m.a. var lögð áhersla á að höfuðstöðvar þjóðgarðsins verði innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar og tekur undir hugmyndir um að höfuðstöðvar þjóðgarðsins verði í Skaftafelli í fyrstu. Þó er mikilvægt að sú staðsetning verði ekki í lögum eða bundin með öðrum hætti. Mestu skiptir nú að nýta þau sóknarfæri sem felast í uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir svæðið í heild og standa saman um að nýta sem best þau sóknarfæri sem felast í stofnun þjóðgarðsins. Þar má m.a. nefna starfsmenn í Skaftafelli og við Jöklasetur á Höfn, sumarstörfer felast í landvörslu og að tryggt verði að fjármunir fáist til uppbyggingar Jöklaseturs á Hornafirði með áherslu á móttöku ferðamanna og rannsóknar- og fræðastarf í samvinnu við Háskólasetrið á Hornafirði. Jafnframt er mikilvægt að bæjarstjórn boði almennan fund í Öræfum hið fyrsta til að ræða þessi mál.
Meirihluti bæjarráð telur að þau áhersluatriði sem fram koma í bókun Kríunnar séu á engan hátt í andstöðu við stefnu meirihlutans í málinu.
Ásta lagði fram drög að rekstrar og framkvæmdayfirliti dags. 30. desember 2003. Þar kemur fram að skatttekjur eru 3% yfir áætlun og rekstur skv. endurskoðaðri áætlun.
Halldóra spurði um eignaskiptasamning fyrir Nýheima. Helgi sagði hann enn í vinnslu. Bæjarráð óskar þess að reynt verði að flýta málinu eins og kostur er.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að Vatnsveitan gefi til skóla í sveitarfélaginu drykkjarvatnsvélar og felur framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs að sjá um framkvæmdina.
Fundi slitið kl. 10:45


