Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 236
236. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn 14. janúar 2004, kl 17:15
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Albert Eymundsson, bæjarstjóri, Ólafur Sigurðsson og Sigurlaug Gissurardóttir sem sitja í nefnd um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og Hermann Hansson form. menningarmálanefndar sem mætti kl. 17:50.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs
Formaður bæjarráðs skýrði frá tilefni fundarins og málefni hans. Ólafur og Sigurlaug gerðu grein fyrir skipan nefndarinnar og störfum hennar. Halldóra Bergljót og Albert upplýstu um fund með ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytisins þar sem hann gerði grein fyrir störfum og hugmyndum svokallaðra þingmannanefndar um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. Miklar umræður urðu um málið og tekið undir fyrri ályktanir og áherslur bæjarstjórnar.
Fundi slitið kl. 18:30


