Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 44

44.fundur

44. fundur Almannavarnanefndar

haldinn í ráðhúsi, 15. október 2012 og hófst hann kl.12.00.

 

 

Fundinn sátu:

Björn Ingi Jónsson formaður

Friðrik Jónas Friðriksson

Páll Björnsson

Einar Sigurjónsson

Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir

Hjalti Þór Vignisson (HÞV)

 

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.

 

 

 

Dagskrá:

 

1.

201210020 - Viðbragðsáætlun

Ester upplýsti að eftir eigi að ganga frá formsatriðum vegna viðbragðsáætlunar HSSA vegna áhættumats í sveitarfélaginu.  Ákveðið að Björn Ingi og Ester fari yfir áhættumat almannavarnarnefndar og samræmi við viðbragðsáætlun HSSA.

 

2.

201210019 - Varaafl í sveitum

Zophonías upplýsti að ekkert varaafl væri við Hofgarð sem væri áhættuþáttur ef almannavarnarástand skapast.  Slíkt hafi gerst í Grímsvatnagosinu.  Sama staða er við Hrollaugsstaði.  Sagði Zophonías að þetta hafi komið fram í samantekt sem hann hafi unnið fyrir RKÍ.  Lagði til að fengin yrði sérfróður aðili til að taka út stöðuna.

Jónas upplýsti að til er vél í húsi Björgunarfélagsins. Einnig að til sé önnur stöð sem koma mætti fyrir á kerru sem hægt yrði að keyra í Öræfi ef á þarf að halda.  Koma þurfi upp búnaði til að geta keyrt varaafl inn í húsið. Nýta mætti vélina líka sem varaafl fyrir hjúkrunarheimili og ýmsa viðburði.

Almannavarnarnefnd telur mikilvægt að þessum málum verði komið í viðunandi horf.  Vélin er til en henni þarf að koma fyrir á góðri kerru sem auðvelt er að flytja þangað sem rafmagn dettur út.  Jafnframt þarf að vera til búnaður við húsin sem tengja mætti varaaflið við.

 

3.

201210018 - Fjöldahjálparstöð

Samkvæmt almannavarnarnefnd var Hafnarbraut 40 móttökustaður vegna viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs.  Búið er að selja húsið.  Almannavarnarnefnd leggur til að Sindrabær taki við því hlutverki.

 

4.

201102011 - Önnur mál

Jónas hvatti til þess að skýrsla um flugslysaæfingu yrði gefin út sem fyrst og þrýst yrði á ISAVIA um að ljúka því. 

Almannavarnarnefnd telur mikilvægt að farið verði yfir fjarskiptaáætlun þannig að tryggt sé að allir viðbragðsáðilar hafi viðeigandi búnað.

Zophonías sagði að ein ábending í skýrslu sinni liti að því að skoða þyrfti tölvutengingu í Hrollaugsstöðum ef húsið eigi að vera tilbúið sem fjöldahjálparstöð.

Ester rifjaði upp að rafræn íbúaskrá þyrfti að vera aðgengileg í björgunarsveitarhúsinu.  Einar upplýsti að lögreglan hafi aðgang að þjóðskrá og auðvelt er að prenta út íbúaskrá úr því viðmóti.

Jónas rifjaði upp stofnun hóps um að skipuleggja öryggismál hjá sveitarfélaginu.  Björn Ingi upplýsti að nefndin hefji störf í nóvember, þegar nýr framkvæmdastjóri HSSA taki til starfa.

Páll hvatti til þess að hugmynd sem kom fram á síðasta fundi um að nýta haugssugur í slökkvistörf verði hrint í framkvæmd.

 

 

 




Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 12.50



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica