Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð Almannavarnanefndar 25
25. fundur
Fundur haldinn í Almannavarnanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 3. desember 2003 kl. 17:30 í húsi Slysavarnafélagsins.
Mættir eru: Páll Björnsson, Helgi Már Pálsson , Steinþór Hafsteinsson og Albert Eymundsson og Baldur Thorsteinsen. Björn Ingi Jónsson formaður björgunarfélagsins mætti í upphafi fundar.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar
2. Samningar við björgunarlið
3. Staðan í uppbyggingu stjórnstöðvar
4. Önnur mál
1. Ekki gerð athugasemd við fundargerð. Páll gerði þó grein fyrir efni síðasta fundar þar sem voru fulltrúar frá Ríkislögreglustjóra sem kynntu ýmis mál eins og kemur fram í síðustu fundargerð.
2. Páll gerði grein fyrir vinnu við samninga við björgunarlið og Rauða krossinn. Formanni falið að ganga frá samningnum, ef ekki verða gerðar stórvægilegar breytingatillögur frá björgunarliðum.
3. Steinþór upplýsti að ekki væri aukarafstrengur frá rafstöð í miðstöð Rarik. Þess vegna verður ekki möguleiki að hafa varaafl milli Rarikhússins og miðstöðvar Almannavarna. Formanni, Helga Má og annarra aðila sem komu að málinu falið að ganga frá kaupum á tækjum og aðbúnaði samkvæmt samþykktum forgangslista og fjárveitingum.
4. a. Björn Ingi kynnti hugmyndir Landsbjargar um kaup og staðsetningar á fullkomnum björgunarskipum. Sömuleiðis ræddi hann um vandkvæði þess að ferðast og fara um grynningar , leirur og mýrlendi á svæðinu. Almannavarnanefnd telur mikilvægt að allir hlutaðeigandi aðilar vinni saman að því að bæta tækjabúnað til björgunar á grynningum, leirum og mýrlendi í héraðinu.
b. Páll gerði að umtalsefni skipulag björgunaraðgerða við almannavarnaástand, sérstaklega skipan og hlutverk aðgerðastjórnar. Samþykkt að taka þessi mál fyrir sem sérstakan dagskrárlið á næsta fundi .
5. Hugsanlega er þetta síðasti fundar Baldurs læknis. Voru honum færðar sérstakar þakkir og óskað velfarnaðar á nýjum slóðum og vettvangi.
Fundi slitið kl. 18:00
Albert Eymundsson
Steinþór Hafsteinsson
Baldur Thorsteinsson
Helgi Már Pálsson
Páll Björnsson


