Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 41

41. fundur

 

41. fundur Almannavarnanefndar haldinn hjá samstarfsnefnd, 24. maí 2011 og hófst hann kl. 12:00.

Fundinn sátu:

Björn Ingi Jónsson formaður

Friðrik Jónas Friðriksson aðalmaður

Páll Björnsson aðalmaður

Einar Sigurjónsson varamaður

Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður

Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir varamaður

Haukur Ingi Einarsson (HIE) starfsmaður tæknisviðs

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson starfsmaður tæknisviðs

Hjalti Þór Vignisson (HÞV)

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.

Dagskrá:

1. 201105023 - Grímsvatnagos

Greint frá samtölum við starfsmenn Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Veðurstofuna um stöðuna á gosinu.  Kom fram að dregið hafi úr gosinu en ennþá er talsverð framleiðsla á gjósku og óvissa nokkuð mikil um framvinduna.  Stefnt er að flugi á gosstöðvarnar í dag þar sem freistað verður að ná skýrari mynd á aðstæður.

Einar sagði frá lokun vega sem væri í stöðugri skoðun og opnað yrði eins fljótt og kostur er.  Einnig greint frá að 4000 grímur og 2000 gleraugu eru á leiðinni til svæðisins og í framhaldi verði þeim dreift samkvæmt áætlun.  Nú þegar hafi 1400 grímum verið dreift.  Kom fram að aðgerðastjórn var að störfum frá kvöldi laugardags og fram á sunnudagskvöld.  Þegar gosið hófst voru 270 ferðamenn á svæðinu ásamt íbúum.  Aðgerðastjórn og viðbragðsaðilar eru í viðbragðsstöðu til að takast á við frekara öskufall á svæðinu.  Aðgerðastjórn hittist á hverju kvöldi kl. 20.00 til að fara yfir stöðuna.

Ásgerður greindi frá íbúafundi í Öræfum sem haldinn var 24. maí þar sem mættu um 50 manns.  Rauði kross Íslands hefur sett upp þjónustumiðstöð í Hofgarði sem verður opinn alla daga frá kl. 15-17.00.  RKÍ og slysavarnardeildin Framtíðinn munu manna miðstöðina í sameiningu.  Sagt að í miðstöðinni verði nauðsynleg gögn til að takast á við aðstæður sem kunna að skapast.

Ester sagði frá að haft hafi verið samband við alla eldri borgara á svæðinu.

Páll spurði um búpening.  Upplýst að eins og staðan væri þyrfti ekki að bregðast við.

Greint frá komu 7 manna teymis á vegum almannavarnardeild ríkislögreglustjóra sem væri á yfirreið um áhrifasvæði gossins og óskaði eftir fundi með almannavarnarnefnd og þeim sem stýrt hafi aðgerðum á fimmtudagsmorgun kl. 9.00.  Fundurinn verður í björgunarmiðstöðinni.

 

Almannavarnarnefnd Hornafjarðar telur ástæðu til að brýna fyrir fólki, þrátt fyrir að gosið í Grímsvötnum hafi rénað talsvert frá því það hófst, að fara ekki um svæðið á meðan ennþá sé hætta á öskufalli nema að brýna nauðsyn beri til.  Samkvæmt upplýsingum er ennþá öflugt gos í gangi sem nokkur óvissa er um hvernig komi til með að þróast á næstu dögum. 

 

Almannavarnarnefnd ræddi nauðsyn þess að hefja undirbúning að hreinsunarstörfum og öðru sem þarf að ráðast í þegar aðstæður hafa skapast vegna gossins. 



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica