Almannavarnarnefnd A-Skaft.
Fundargerð almannavarnanefndar 40
40. fundur
Fundur haldinn í almannavarnarnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 4. maí 2011, kl. 12.00 í Ráðhúsi.
Mætt voru: Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Friðrik Jónas Friðriksson, Páll Björnsson, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Ester Þorvaldsdóttir og Einar Sigurjónsson.
Fundaritari: Hjalti Þór Vignisson
Dagskrá:
1. Flugslysaæfing.
Lögð fram drög að flugslysaáætlun. Einar Sigurjónsson gerði grein fyrir áætluninni. Talsverð umræða varð um fjarskiptaskipulag og ábyrgð björgunarstjóra á vettvangi er varðar mönnun bílstjóra. Almannavarnarnefnd samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti með áorðnum breytingum. Almannavarnarnefnd Hornafjarðar tilnefnir formann nefndarinnar í aðgerðastjórn og sýslumann til vara.
2. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 13.10


