Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 35

35. fundur

Almannavarnarnefnd Hornafjarðar kom saman til fundar fimmtudaginn 15. apríl 2010 kl 20.00 í Ráðhúsinu á Höfn

Mættir voru: Björn Ingi Jónsson, formaður, Reynir Arnarson, Páll Björnsson, Ólafur Sigurðsson og Friðrik Jónas Friðriksson.

Einnig:  Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Borgþór Freysteinsson, Sigurður Guðnason, Jón Garðar Bjarnason , Jóhann Hilmar Haraldsson og Guðrún Júlía Jónsdóttir.

1.      Eldgos í Eyjafjallajökli – möguleiki á öskufalli

Björn Ingi gerði grein fyrir aðdraganda fundarins, fór yfir veðurspá og líkindi þess að aska falli á næstu dögum á starfssvæðinu.  Borgþór fór yfir vatnsveitur og taldi litla hættu á að vatnsból mengist fyrir utan eitt vatnsból sem er staðsett í sveit og verður vaktað sérstaklega.  Borgþór mun hafa samband við þá bæi sem þurfa að vakta vatnsból sín.   Guðrún Júlía sagði frá samtali sínu við landlæknisembættið og leiðbeiningar frá honum um hvernig fólk geti best varið sig ef öskufall verður.  Sagði einnig frá að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafi verið í sambandi um sjúkraflug.  Fundarmenn ræddu almennt um efnainnihald öskunnar, skaðsemi hennar og annað sem mikilvægt er að hafa í huga.

Almannavarnarnefnd samþykkti að senda frá sér leiðbeiningar á fjölmiðla og í dreifibréf .  Jafnframt ákveðið að vera í viðbragðsstöðu og funda aftur á næstu dögum ef þurfa þykir.

 Fundi slitið kl 20.45



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica