Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 37

37. fundur

Fundur haldinn    í almannavarnarnefnd Hornafjarðar, miðvikudaginn 15. desember 2010, kl. 17.00 í Ráðhúsi.

Mætt voru: Björn Ingi Jónsson, Reynir Arnarson, Jónas Friðriksson, Páll Björnsson og Ester Þorvaldsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.

Dagskrá:

1.      Viðbragðsáætlun

Lögð fram skjöl um áætlun um viðbrögð við níu áhættuþáttum.  Kom fram að unnið sé að gerð áætlunar um mengunarslys í sundlaug og fleiri slíkum atriðum.  Almannavarnarnefnd gerði breytingar og samþykkti síðan framlögð skjöl.  Hjalta falið að koma þeim á framfæri við Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra.

2.      Skipan almannavarnarnefndar

Björn Ingi fór yfir skipan nefndarinnar og gerði grein fyrir viðræðum sínum við starfsmann AVDR.  Sveitarfélög hafa lögum samkvæmt heimild til að skipa í nefndina.   Vegna eðlis nefndarinnar er hins vegar ákjósanlegt að hafa fasta fulltrúa í nefndinni frá þeim aðilum sem snerta almannavarnir mest, s.s. heilbrigðisstofnun og björgunarfélög.
Almannavarnarnefnd telur mikilvægt að sveitarfélagið fari að nýju yfir lögin út frá þessum sjónarmiðum.
Einnig greint frá að sveitarfélagið hafi ekki fulltrúa í aðgerðarstjórn.   Mikilvægt er að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa í stjórn.

3.      Skipun í samráðshóð áfallahjálpar

Björn Ingi og Ester gerðu grein fyrir málinu.  Lögðu til að í hópnum sitji prestur, félagsmálastjóri, fulltrúi RKÍ og fulltrúi HSSA.  Almannavarnarnefnd staðfestir skipun hópsins.

4.      Önnur mál.

Upplýst að stefnt er að flugslysaæfingu vorið 2011. Mikilvægt að aðilar byrji að undirbúa sig og í því sambandi var sérstaklega rætt um fjarskiptamál.
Björn Ingi greindi frá ráðstefnu í Reykjavík um almannavarnarmál.  Þar var m.a. rætt um gosið í Eyjafjallajökli og sérstaklega um mikilvægi rýmisáætlana.  Sagði að von væri á fyrirmynd að slíkri áætlun á næstunni.

 

Fundi slitið kl. 18.30



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica