Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 38

38. fundur

 

Fundur í  almannavarnanefnd haldinn hjá samstarfsnefnd,fimmtudaginn 17. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu:

Björn Ingi Jónsson, Reynir Arnarson, Friðrik Jónas Friðriksson, Páll Björnsson, Einar Sigurjónsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir,  

Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

Dagskrá:

1.    201102010 - Skipan almannavarnanefndar - samantekt HÞV

Lögð fram greinargerð dags. 7 febrúar 2011 um skipan almannavarnarnefndar.
Björn Ingi gerði grein fyrir samtölum sínum við lögreglustjóra embættisins. Ræddi um að framlögð tillaga nyti stuðnings hennar. Einar sagði það sína skoðun að mikilvægt væri að lögreglan hefði fulltrúa á fundum, hvort sem hann væri hluti af nefndinni sjálfri eða áheyrnarfulltrúi.
Björn Ingi vísaði í samtal sitt við lögreglustjóra.
Eftirfarandi tillögu um skipan almannavarnarnefndar vísað til bæjarráðs:
- bæjarstjóri
- fulltrúi bæjarráðs
- fulltrúi lögreglunnar
- fulltrúi HSSA
- fulltrúi sjálfboðaliðasamtaka.

2.    200904101 - Flugslysaáætlun (drög) fyrir Hornafjarðarflugvöll

Björn Ingi upplýsti að æfingin sé áætluð 7. maí 2011. Lagði áherslu á að í aðdraganda yrði farið yfir áætlunina, m.a. fjarskipti. Lagði áherslu á að fundarmenn væru búnir að kynna sér efni hennar fyrir næsta fundi. Ester lagði áherslu á að tækifæri varðandi fræðslu og kennslu í aðdraganda æfingarinnar yrði nýtt af þeim hópi sem kemur að æfingunni. Nefndin óskar eftir að Einar taki að sér að sinna undirbúningi og skipulagi fyrir æfinguna.

3.    201102011 - Önnur mál

Almannavarnarnefnd sammála um að funda fjórða þriðjudag í hverjum mánuði kl. 16.00.
Jónas sagði að lokið væri við að endurbætur á stjórnstöð á Höfn og í Öræfum.
Einar upplýsti um skjálftavirkni í Vatnajökli með tilliti til hugsanlegs gos við Bárðarbungu.


Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   17.00


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica