Almannavarnarnefnd A-Skaft.

Fundargerð almannavarnanefndar 36

36. fundur

Fundur í Almannavarnanefnd haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 26. apríl 2010 og hófst hann kl. 20.00

Fundinn sátu:

Björn Ingi Jónsson, Reynir Arnarson, Ólafur Sigurðsson, Friðrik Jónas Friðriksson, Páll Björnsson, Hjalti Þór Vignisson (HÞV), Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir,  

 Fundargerð ritaði:  Hjalti Þór Vignisson, Bæjarstjóri

  Dagskrá:

 1.      201004055 - Eldgos

Björn Ingi gerði grein fyrir að ekki er lengur talin hætta á öskufalli í Austur-Skaftafellssýslu vegna eldgos í Eyjafjallajökli því askan er að verða grófari og fýkur því skemur. Hjalti gerði grein fyrir svörum Magnúsar Tuma Guðmundssonar dags. 21.apríl 2010 um stöðu Grímsvatna.

2.      201004054 - Áhættuskoðun - almannavarnarnefnd

Björn Ingi lagði til að fundarmenn færu yfir skjal um áhættu í umdæmi lögreglustjórans á Eskifirði og kortleggi mögulega áhættu á að almannavarnarástand skapist. Fundarmenn töldu að gera þyrfti áhættumat fyrir eftirfarandi:
óveður, eldgos, samgöngurof, jökulhlaup, vatnavexti í ám, flugslys, sjóslys, umferðarslys, mengunarslys á sjó og landi, vegna ferða á jökli og Jökulsárlóni, vegna útivistar í þjóðgarði, aurskriða, snjóflóða, flóðbylgja, eiturefnaslysa, raforkurofr og neysluvatnsrofs.

Rætt um sinubruna í Nesjum undanfarna daga og mikilvægi þess að gerðar verði viðeigandi áætlanir um samstarf viðbragðsaðila þegar hætta skapast.

Almannavarnarnefnd felur formanni og bæjarstjóra að fylla inn í viðegandi eyðublöð og leggja fyrir fund að því loknu.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   22.10



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica